Fallist á kröfur um gæsluvarðhald yfir mönnunum tveimur

frettinInnlentLeave a Comment

Dómari við Héraðsdóm Suðurlands hefur fallist á kröfu lögreglustjórans á Suðurlandi um gæsluvarðhald yfir tveimur karlmönnum sem voru handteknir vegna rannsóknar lögreglu á andláti konu á þrítugsaldri sl. fimmtudag. Atvikið átti sér stað í heimahúsi á Selfossi.

Krafan var lögð fram fyrir Hérðasdómi Suðurlands í gær og boðaði dómari til þinghalds til að úrskurða um málið núna í morgun. Mennirnir tveir voru úrskurðaðir í gæsluvarðahald til 5. maí nk.

Í tilkynningu frá lögreglunni segir að rannsókn lögreglunnar muni haldi áfram af fullum krafti og hefur lögreglustjórinn á Suðurlandi m.a. notið aðstoðar tæknideildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og lögreglustjórans á Suðurnesjum.

Ekki sé hægt að veita frekari uppýsingar vegna málsins á þessari stundu vegna ríkra rannsóknarhagsmuna.

Skildu eftir skilaboð