Eftir Geir Ágústsson:
Frændi minn skrifaði áhugaverða hugleiðingu í grein um daginn sem ég birti hér í heilu lagi:
Tilheyrir þú þögla meirihlutanum?
Undirritaður vill hvetja þögla meirihlutann til þess að viðra skoðanir sínar oftar, gera það af skynsemi, með kærleika í hjarta og af stakri kurteisi.
Hefur þú velt því fyrir þér, hvers vegna umræðan í fjölmiðlum og á samfélagsmiðlum fer illa saman við umræðu meðal vina og vandamanna? Hvers vegna öfgakenndar skoðanir virðast tröllríða „umræðunni“ og öll raunveruleg umræða um sömu mál er þögguð niður og lítið gert úr þeim sem hafa spurningar eða áhyggjur af þróuninni?
Ef þú hefur velt þessu fyrir þér er ekki ólíklegt að þú sért hluti af þögla meirihlutanum. Fámenni minnihlutinn á vissulega rétt á því að koma skoðunum sínum á framfæri, en í lýðræðislegu samfélagi er það ólíðandi að hún taki yfir umræðuna með slíku offorsi og með beinum eða óbeinum hótunum í garð þeirra sem voga sér að hafa aðra skoðun eða spyrja sjálfsagðra spurninga.
Lesandi góður, ég vona að þú kjósir að taka þátt í því að opna umræðuna. Það er nauðsynlegt að spyrja spurninga, tjá sig og láta fólkið í kringum sig vita fyrir hvað maður stendur. Á sama tíma er afar mikilvægt að ræða málin af skynsemi, með kærleika í hjarta og af kurteisi við menn og málefni. Hver nennir að sitja undir gífuryrðum og dónaskap?
Oftast heyrum við talað um þögla minnihluta, eða minnihluta sem fá enga áheyrn. Kannski það sé ekki vandamálið. Kannski er vandamálið að meirihlutinn þegir, eða er látinn þegja, a.m.k. á opinberum vettvangi.
Þessi meirihluti sem hefur áhyggjur af ýmsum tískustraumum. Þessi sem lætur sig hafa það að fyrirmælin stangast á við magatilfinninguna og betri vitund og fylgir fyrirmælunum sama hvað. Þessi sem vildi gjarnan vita meira um það sem er sagt við börn sín á stofnunum en þorir ekki að spyrjast nánar fyrir um það.
Hvað þekkir þú marga sem skilgreina sig sem konu með typpi eða kisu eða án hneigðar eða með nýja hneigð á hverjum degi? Hvað þekkir þú marga sem vilja hræða börn sín til dauða út af veðurfarinu? Hvað þekkir þú marga sem sýna í verki að notkun jarðefnaeldsneytis er dauðadómur plánetunnar?
Sennilega færri en sem nemur plássinu sem spámenn þessara skoðana fá í fjölmiðlum.