Aðalsteinn og eiginkona skipstjórans

frettinInnlentLeave a Comment

Páll Vilhjálmsson skrifar:

Aðalsteinn Kjartansson blaðamaður Heimildarinnar og varaformaður Blaðamannafélags Íslands stefnir bloggara fyrir 8 ummæli, eins og kom fram í færslu gærdagsins. Ein ummælin eru eftirfarandi

Nýverið tilkynntu Blaðamannafélag Íslands og Aðalsteinn nýjar siðareglur. Þriðja grein eldri siðareglna var felld niður í heild sinni. Nú er komið skotleyfi blaðamanna á fólk ,,sem á um sárt að binda". Eins og Aðalsteinn orðar það í leiðaranum: siðareglur ,,eru nú til endurskoðunar og mikilvægt er að þær endurspegli raunveruleikann sem blaðamenn starfa við í dag."

RSK-miðlar nýttu sér skotleyfið áður en það var gefið út. Þeir misnotuðu andlega veika konu til að byrla og stela. Sakborningur setur siðareglur sem réttlæta framinn glæp.

Í stefnu lögmanns Aðalsteins er þvertekið fyrir að blaðamaðurinn hafi átt aðild að misnotkun á andlega veikri eiginkonu skipstjórans, ,,sem hann hefur aldrei hitt," segir í stefnunni.

Það er hægt að misnota fólk án þess að hitta það. Í málsgögnum lögreglu, sem þegar eru komin í umferð, er tölvupóstur veiku konunnar frá 3. október 2021.

Viðtakendur eru Lára V. Júlíusdóttir lögfræðingur, Þóra Arnórsdóttir, Aðalsteinn Kjartansson og Ingi Freyr Vilhjálmsson, þá blaðamenn Stundarinnar en nú Heimildarinnar. Tölvupósturinn í heild:

Sæl Lára.
Ég gef hér með Þóru Arnórsdóttur og Aðalsteini Kjartanssyni umboð til að ná í símkortin mín til þín ef þau óska eftir því að fá þau í hendur ásamt öðru efni sem þú kannt að hafa frá mér.

Lára var lögfræðingur veiku konunnar. Hún virðist hafa verið milligöngumaður byrlara og blaðamanna.

Varla tekur þáverandi eiginkona Páls skipstjóra upp á því að gefa Aðalsteini heimild til að taka símkort sín á lögfræðistofu Láru án þess að hafa átt einhver samskipti við hann áður.

Dagsetning tölupóstsins, 3. október 2021, er mikilvæg. Eiginkona skipstjórans hafði verið boðuð í sína fyrstu yfirheyrslu, sem fór fram tveim dögum síðar.

Allir sem nota farsíma vita að maður gefur ekki frá sér símkort nema í algjörum undantekningartilfellum. Símtæki er ónothæft án símkorts. Veika konan notaði tvo síma og hún er tilbúinn að láta símkort beggja símanna til blaðamanna, samkvæmt tölvupósti. Augljóst er að blaðamenn í samvinnu við Láru lögfræðing höfðu tök á konunni og fengu hana til að gera hluti sem fólk almennt ekki gerir. Enda um að ræða andlega veikan einstakling.

Hvers vegna vildu blaðamenn símkort konunnar? Jú, í símkortum eru geymdar upplýsingar um símasamskipti. Eigum að halda að ásetningur blaðamanna hafi verið að auðvelda lögreglu rannsókn málsins? Koma jólasveinar til byggða í júní?

Almenningur og enn frekar lögregla, sem rannsakar sakamál, eiga ríkan rétt að fá upplýsingar um samskipti Aðalsteins og félaga við andlega veika konu grunaða um byrlun og stuld í þágu RSK-miðla (RÚV, Stundin og Kjarninn).

Heimildinni er haldið á floti með ríkisframlagi og blaðamenn segjast starfa í þágu almennings og réttarríkisins. En Aðalsteinn og félagar skella í lás og fá til þess stuðning annarra fjölmiðla sem stunda meðvirka þögn. Er tilfallandi bloggari skrifar fréttir um byrlunar- og símastuldsmálið fær hann á sig málsókn. Kafka heitinn hefði gert sér mat úr fáránleika íslenskra fjölmiðla.

Skildu eftir skilaboð