Páll Vilhjálmsson skrifar:
Viðskiptaritstjóri breska ríkisútvarpsins, BBC, sat við hlið yfirmanns Coutts banka í kvöldverðaboði daginn áður en viðskiptaritstjórinn skrifaði fréttatíst um bankinn hefði lokað reikningum Nigel Farage. Forsætisráðherra Bretlands gagnrýnir samstarf viðskiptabanka og ríkisútvarpsins að knésetja mann með ,,rangar" skoðanir.
Í viðtengdri frétt er haft eftir Farage
þetta mál snýst ekki bara um mig. Þú gætir verið næstur...ef ekki er brugðist við þá förum við hægt og rólega inn í félagslegt skipulag líkt og ríkir í Kína, þar sem bara þeir sem hafa „réttar“ skoðanir geta tekið fullan þátt í samfélaginu.
Ríkisútvarp er nærtækur samstarfsaðili valdhafa sem telja sig hafa réttar skoðanir. RÚV er til dæmis í samstarfi við starfshóp vinstrimanna í stjórnarráðinu um ,,réttar skoðanir" á málefnum flóttafólks.
RÚV á að vera fjölmiðill sem endurspeglar þjóðfélagslega umræðu hér á landi. En RÚV birtir ekki sjónarmið sem t.d. Heiðar Guðjónsson, fjárfestir og fyrrverandi forstjóri talar fyrir:
Ríkisstjórnin er hálfgert rekald og það er algerlega stefnulaust. Þannig að stór mál sem skipta okkur máli, eins og íslensk tunga og menning og hvernig þetta fjölmenningarsamfélag mun hafa áhrif á okkar samfélag og breyta því varanlega og hugsanlega óafturkræft. Hvaða skoðun höfum við á því?
Margir hafa tekið í sama streng og Heiðar síðustu vikur og mánuði, að verið sé að skipta um þjóð í landinu og það sé fyrst og fremst höfundarverk vinstrimanna.
En RÚV þaggar umræðuna, lætur eins og hún sé ekki til. Skýringuna er að finna í fundargerð stjórnar RÚV. Þar segir útvarpsstjóri, Stefán Einríkisson:
Fulltrúar RÚV áttu fund með starfshópi stjórnvalda um málefni innflytjenda og flóttafólks, en nú er unnið að heildarstefnumótun stjórnvalda á því sviði.
Vinstrimenn í stjórnarráðinu þykjast hafa rétta skoðun á þeirri þróun að Íslendingar tapa jafnt og þétt tungumáli sínu og menningu. Samstarfsaðili vinstrimanna er auðvitað ríkisfjölmiðillinn, RÚV, sem skipulega kemur í veg fyrir að sjónarmið Heiðars Guðjónssonar og margra fleiri komist á framfæri. RÚV er framkvæmdavald pólitíska rétttrúnaðarins í opinberri umræðu. Fundargerðin staðfestir það svart á hvítu.
Valdaöfl réttra skoðana nota ríkisútvarp til að framfylgja skoðanakúgun. Gildir bæði í Bretlandi og á Íslandi.
2 Comments on “Skoðanakúgun BBC og RÚV”
RUV á fyrst og fremst að segja fréttir ekki búa þær til eða skreita til að þóknast ákveðnum öflum!
RUV kolfalla á þessu prófi ásamt öllum hinum stóru miðlunum Visir, DV, MBL og Heimildin. Allir þessir miðlar eru að búa til sömu fréttirnar nánast orðrétt í sama stíl.
Það á að loka þessari skítabúllu RUV. Afar illa farið með almanna fé hjá þessu batterýi, það var notað hér áður fyrr að þetta væri svo mikið öryggisatriði að hafa gufuna, hver eru rökin í dag? Afar þreittur og slakur fréttaflutningur, afar slakir þættir og annað rusl sem heldur betur má missa sín.