Þjóðernissinnaður hægri flokkur á Spáni: RÚV hefur fundið sinn óvin

frettinErlent, Jón Magnússon, Kosningar4 Comments

Jón Magnússon skrifar:

Í dag eru þingkosningar á Spáni. Fréttastofa RÚV hefur fundið sinn óvin þar, VOX flokkinn, sem RÚV segir öfgahægri flokk.  

Fréttastofa RÚV andskotaðist út í flokk Meloni á Ítalíu vegna sömu ávirðinga. Eftir að Meloni varð forsætisráðherra sést, að ríkisstjórn hennar er sú besta á Ítalíu um áratuga skeið.

En hver er þessi VOX flokkur á Spáni? 

VOX byggir á kristnum gildum, virðingu fyrir einstaklingnum og er andstæðingur fasisma, nasisma og kommúnisma. VOX er á móti kynrænu sjálfræði og vill loka moskum öfgamúslima. Þeir berjast fyrir lægri sköttum og gegn útþenslu ríkisbáknsins.

VOX telur að lög Spánar eigi að gilda umfram lög Evrópusambandsins(ES)og er sammála okkur, sem erum á móti tillögu utanríkisráðherra um að ES lög gildi umfram íslensk.

VOX stendur fyrir einstaklingshyggju,valddreifingu, kristin gildi og mannréttindi. Þess vegna kærðu þau Kóvíd ráðstafanir stjórnar sósíalista, til stjórnlagadómstóls Spánar og unnu sigur. 

RÚV greinir ekki frá því að Sósíalistar hafa staðið fyrir árásum á frambjóðendur VOX. Þessir vinstriöfgamenn, sem saka VOX um fasisma eru þeir einu sem beita frambjóðendur annarra flokka ofbeldi og reyna að koma í veg fyrir lýðræðislega starfsemi andstæðinga sinna. 

VOX er róttækur þjóðernissinnaður hægri flokkur, sem vill ekki að það sé skipt um þjóð á Spáni og leggur fram tillögur um að stemma stigu við straumi hælisleitenda til landsins. Þeir vilja verja einingu Spánar og andæfa gegn grænu öfgahyggjunni.

Athyglisverð eru ummæli eins helsta forystumanns VOX fyrir nokkru varðandi innflytjendastrauminn, en hann sagði: "Það eru bara þeir ríku sem geta veitt sér þau lífsgæði að eiga ekki föðurland."  Þeir ofurríku, berjast nú flestir fyrir glópalisma og alheimsstjórn með Davos sem höfuðborg sína. Gegn þjóðríkinu og hefðbundnu lýðræði. 

Við lýðræðissinnar sem viljum venda þjóðríkið, valddreifingu og réttindi einstaklinganna verðum  að vera í varðstöðu gagnvart þeim öflum. Raunverulegu lýðræði og þjóðríkinu stafar hætta frá auðkýfingunum í Davos, en ekki frá þeim sem vilja vernda hefðbundið lýðærði og fullveldi þjóðríkisins.

4 Comments on “Þjóðernissinnaður hægri flokkur á Spáni: RÚV hefur fundið sinn óvin”

  1. Að sjálfsögðu hatast RÚV við VOX flokkinn á Spáni, líkt og þeir hatast við Giorgia Meloni á Ítalíu, Marine Le Pen í Frakklandi, og Donald Trump í USA. Allir sem samþiggja ekki öfga vinstristefnu RÚV eru stimplaðir óvinir guðleysingjana (sem trúa því að í myrkrinu sé að finna hið sanna Ljós). RÚV er ekkert annað en áróðursfréttastofa fyrir siðferðislegt skipbrot mannlegra gilda og eyðileggingu vestrænnar menningar.

  2. Það sem vinstrið er orðið í dag er siðferðislegt gjaldþrot

  3. Hægri öfgamenn? Þeir semsagt vilja hvorki nauðga börnum né skera af þeim kynfærin.

    Og and-fasískir í þokkabót. Starfa fyrir fólk en ekki á móti því.

    Klassa menn ljóslega þarna á ferð. Engin furða að RÚV sé með eitthvað á móti þeim.

  4. Hvernig í ósköpunum text mér að sofna á kvöldin, vitandi að rúv fær sjálfkrafa 17.000 kr. úr mínum vasa hvert ár til að ljúga og heilaþvo saklaust fólk um land allt ?

Skildu eftir skilaboð