Bera gyðingastjörnuna í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna

frettinErlent, Gústaf SkúlasonLeave a Comment

Gústaf Skúlason skrifar:

Sendinefnd Ísraels í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna er farin að bera gulu gyðingastjörnuna eins og gyðingar voru merktir með í Þýskalandi nasismans.

Gilad Erdan, sendiherra Ísraels hjá Sameinuðu þjóðunum, tók fram gulu stjörnuna með textanum „Aldrei aftur“ á fundi öryggisráðsins. Samstarfsmenn hans gerðu slíkt hið sama og settu síðan stjörnurnar í barminn. Gilad Erdan útskýrði þessa táknrænu athöfn:

„Héðan eftir munu ég og félagar mínir bera gular stjörnur. Við munum bera þessar stjörnur þar til þið fordæmið voðaverk Hamas og krefjist þess, að allir gíslar verði látnir lausir.”

15 meðlimir öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna eru vægast sagt sundraðir í afstöðu til stríðsins á milli Ísraela og Hamas, sem staðið hefur yfir í rúmar þrjár vikur. Sjá má þegar sendinefnd Ísraela setur á sig stjörnurnar á myndskeiðinu hér að neðan:

Skildu eftir skilaboð