Nýleg könnun: nær helmingur kennaranema íhugar að hætta

frettinHelga Dögg Sverrisdóttir, Innlent2 Comments

Helga Dögg Sverrisdóttir skrifar:

Grunnskólakennarar búa við svipaðan vanda á öllum Norðurlöndunum. Færri sýna kennaramenntuninni áhuga, fleiri fara ekki í kennslu að loknu námi og margir hverfa frá kennslu snemma á starfsferlinum. Margar ástæður liggja þar að baki. Sennilega ekki hægt að benda á neitt ákveðið, þó margt bendi í sömu átt.

Gömul könnun frá sveitarfélögunum hér á landi sýndi að um 40% grunnskólakennara voru tilbúnir að hætta kennslu ef þeir fengju annað starf við hæfi og svipuð laun. Fjórir af hverjum 10 var tilbúinn að hætta. Það hefði átt að hringja viðvörunarbjöllum í samfélaginu. Hefur staðan batnað, það er spurning!

Danir duglegir að kanna stöðu mála

Danir gera margar kannanir og rannsóknir meðal grunnskólakennara. Áhugaverð könnun var gerð var meðal kennaranema í Danmörku. Niðurstöður sýna ógnvænlega þróun, nærri helmingur kennaranema íhuga að hætta í námi. Nú þegar er einn af hverjum fimm sem sinnir kennslu leiðbeinandi, hafa ekki tilskylda menntun til að kenna í grunnskóla.

Staðan hér á landi er áhyggjuefni líkt og í Danaveldi. Mun fleiri leiðbeinendur eru við störf þetta skólaárið og illa hefur gengið að ráða kennara. Þegar skólastarf hófst voru ekki allar kennarastöður mannaðar. Ekki má ráða leiðbeinenda í starf grunnskólakennara nema fá fyrir því undanþágu.

Í Skandinavíu eru menn duglegri að gera kannanir og rannsóknir meðal grunnskólakennara en á Íslandi. Við höfum þar af leiðandi dregið ályktanir að svipað ástand ríki í málefnum grunnskólakennara hér á landi því samfélögin eru um margt lík.

Könnunin með kennaranema í Danmörku

Í könnun nemendafélagsins sem send var á rúmlega 5000 kennaranema svöruðu 43% að þeir íhuguðu að hætta kennaranáminu. Nemana skortir leiðsögn og meiri undirbúningstíma, segir formaður þeirra.

Léleg kennsla í kennaranáminu. Hræðsla við slæma vinnuaðstæður að námi loknu. Efasemdir um hvort framtíðin sé að vera kennari. Þetta voru áherslur í þeim svörum sem flokkast undir almennt eðlis þegar nemarnir voru spurðir af hverju þeir íhuguðu að hætta. Könnunin var gerð í apríl 2023.

Samkvæmt tölum frá dönskum fagháskólum mun vantar rúmlega 13 þúsund kennara árið 2030 og í ár fækkar kennurum enn frekar. Formaður nemanna telur nauðsynlegt að grípa inn í ef snúa á þróuninni við.

,,Ætlum við að leysa kennaraskortinn í Danmörku verðum við að tryggja að nemendur hætti ekki námi áður en þeir eru komnir í starf. Það krefur að þeir fái þann stuðning sem þeir hafa not fyrir, t.d. verður að tryggja leiðsagnakennara í skólanum og hafa undirbúningstímann meiri í upphafi“ segir formaðurinn.

Samkvæmt formanninum eru líka ljósir punktar í könnuninni. Helmingur þátttakenda sagði að æfingakennslan hafi aukið áhuga þeirra á að kenna í grunnskólanum.

,,Æfingakennslan er besti möguleikinn til að æfa sig og þjálfa faglega færni því með nýju kennaramenntuninni hefur æfingakennslan aukist um þriðjung. Á þann hátt komumst við í tæri við grunnskólann og vonandi vekur það áhuga hjá fleirum að vinna í skólanum að loknu námi“

Væntanleg rannsókn KÍ

Staða grunnskólakennara á Norðurlöndum hefur versnað og þeir hafa verulega áhyggjur af því. Þetta kemur fram í öllum samtölum við norræna kollega. Það helsta sem kennarar nefna eru launin, undirbúningstíminn, aukið ofbeldi, aukið álag, agaleysi, lægri greiðslur til grunnskóla, fjölbreyttari nemendahópar, fjölgun útlendinga sem hafa ekki tungumálið á sínu valdi. Fljótt á litið rímar þetta flest við ástandið hér á landi.

Kennarasamband Íslands mun gera rannsókn meðal félagsmanna sinni um ofbeldi í starfi. Það var samþykkt að veita fé í slíka rannsókn á síðasta þingi sambandsins. Ofbeldi, munnlegt og líkamlegt, í garð kennara hefur aukist á öllum Norðurlöndunum. Hér á landi hefur engin rannsókn verið gerð til að kanna ástandið. Vonandi verður bætt úr því hið snarasta.

Höfundur er keannari.         

2 Comments on “Nýleg könnun: nær helmingur kennaranema íhugar að hætta”

  1. Það er þó von, nýlega losuðu samtök kennara sig við fordómafulla formannatusku sem hélt að málfrelsi þýddi að hún gæti borið út hatur án afleiðinga. Sýnir að stéttin er að losa sig við gagnslausa ruslið.

  2. Einar Viðarsson, hvaða fordóma ert þú að tala um?

    Ég held að agaleysi í samfélaginu og í uppeldi barna sé sennilega stærsta vandamálið sem snýr að kennurum í dag, þetta er nú ekki beint aðlagandi starfsumhverfi.

Skildu eftir skilaboð