Gústaf Skúlason skrifar:
Markmið 2030 – „Agenda 2030“ sem glóbalistarnir nota til að ná kverkatökum á ríkjum heims, virðast ætla að mistakast algjörlega. Kemur það fram í skýrslu frá þróunarstofnun Sameinuðu þjóðanna „Sustainable Development Solutions Network” samkvæmt fréttastofu AP.
Árið 2015 settu SÞ upp 17 alþjóðleg sjálfbærnimarkmið í „Agenda 2030.“ Þau markmið innihalda m.a. „baráttuna gegn loftslagsbreytingum.“ Þegar helmingur tímans er liðinn í dag, lítur ekki betur út en að engu markmiði verið náð. Þetta kemur fram í „Skýrslu um sjálfbæra þróun“ sem kom út fyrr í ár. Guillaume Lafortune, aðalhöfundur skýrslunnar, sagði við AP:
„Við eigum á hættu að tapa áratug í sjálfbærri þróun.”
Öll heimsmarkmiðin komin verulega út af sporinu
Þess í stað er hættan sú, að bilið á milli ríkra og fátækra landa varðandi „sjálfbæra þróun“ verði stærra árið 2030 samanborið við 2015. Í skýrslunni segir, að öll heimsmarkmiðin hafi farið verulega út af sporinu.
TT hefur einnig skrifað um þetta og bendir á að „17 af 17 heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna gætu mistekist fyrir 2030.”