Gústaf Skúlason skrifar:
Evrópa stendur frammi fyrir „afgerandi augnabliki.“ Aldrei áður hefur ESB verið eins ógnað af „popúlistum, þjóðernissinnum og lýðskrumurum“ sagði Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, á þingi EPP í Búkarest (sjá myndskeið að neðan).
Í júní eru kosningar til ESB-þingsins. Þingmenn eru kjörnir í kosningunum og útkoma þeirra hefur einnig óbeint áhrif á hver verður næsti forseti framkvæmdastjórnar ESB.
Forseti framkvæmdastjórnarinnar, Ursula von der Leyen, varaði í ræðu hjá þinghóp EPP fyrr í mars við því sem sem hún telur vera í húfi. Samkvæmt von der Leyen er heimurinn sem við búum í núna hættulegur, meðal annars vegna Rússlands og Kína. Hún segir „afgerandi augnablik“ í loftinu núna (kosningarnar). Í dramatískri ræðu sagði hún:
„Hér heima eru vinir Pútíns að reyna að endurskrifa sögu okkar og ræna framtíð okkar. Þeir dreifa hatri á bak við lyklaborðið.“
„Látum engan vafa vera á því, hvað er í húfi í þessum kosningum. Popúlistar, þjóðernissinnar og lýðskrumarar ógna hinni friðsömu og sameinuðu Evrópu okkar eins og enginn sé morgundagurinn. Burtséð frá því, hvort það er öfgahægri eða öfga vinstri.“
„Sama hvort það er AfD, Rassemblement National, The Confederatia eða Wasraschdene. Nöfnin geta verið önnur en markmiðið er það sama! Þeir vilja traðka á gildum okkar og þeir vilja eyðileggja Evrópu okkar. En við, EPP, munum aldrei láta það gerast.“
Unelected EU head Ursula von der Leyen is worried that anti-globalist "populists and nationalists" are set to triumph in the upcoming EU elections, as a growing tide of anti-EU sentiment sweeps across Europe, in response to the EU's open-door immigration policies, war on farmers… pic.twitter.com/OE9qnRnhAS
— Wide Awake Media (@wideawake_media) March 11, 2024
One Comment on “ESB-glóbalistarnir hræddir um að missa völdin”
Glóbalistarnir í Evrópu eru skíthræddir við að missa völdin, og að almenningur sé farin að sjá í gegnum þá og kjósa flokka sem eru mótfallnir þeirra alræðisheimssýn. Spurning er auðvitað, hvað munu þessir manndjöflar gera til að koma í veg fyrir að þeir missi völdin? Banna lýðræðið til að vernda lýðræðið! Að sjálfsögðu munu þeir nota rökin að það sé gert til að vernda hagsmuni almennings!!! Svona eins og þeir gerðu með því að loka öllu til að ´vernda´ fólk gegn Covid.