Geir Ágústsson skrifar:
Ríkisstjórnin hefur sett sér metnaðarfull markmið um að Ísland nái kolefnishlutleysi og fullum orkuskiptum eigi síðar en árið 2040 og verði þá óháð jarðefnaeldsneyti fyrst ríkja. Þetta stendur á vef Stjórnarráðsins. Meðal aðgerða til að ná þessu markmiði eru rausnarlegir styrkir til kaupenda rafmagnsbíla. Vísað er til reynslu Norðmanna:
Sé litið til Noregs þar sem hraðast hefur gengið að ná upp hlutdeild rafbíla beinast VSK-ívilnanir eingöngu að hreinorkubílum. Í norsku fjárlögunum fyrir árið 2022, sem voru samþykkt í síðasta mánuði, er kveðið á um fjölþættar breytingar til að ljúka orkuskiptunum og auka tekjur ríkisins af ökutækjum á ný. Norsk stjórnvöld stefna að því að allir nýskráðir bílar verði hreinorkubílar árið 2025.
Og vissulega kaupa Norðmenn yfirgnæfandi rafmagnsbíla.
En vitið þið hvað! Notkun Norðmanna á jarðefnaeldsneyti er óbreytt!
Eftirspurn eftir eldsneyti til aksturs á vegum í Noregi hefur haldist tiltölulega stöðug, jafnvel þó að notkun rafbíla hafi aukist, sem vekur upp spurningar um hvort rafbílar hafi raunverulega mikil áhrif á dísil- og bensínsölu, sagði Rystad Energy á síðasta ári.
Skortur á áberandi áhrifum á olíueftirspurn í landi þar sem rafbílar eru 90% af allri sölu nýrra bíla er varúðarsaga fyrir þá sem spá samstundis samdrætti í olíueftirspurn vegna aukinnar sölu rafbíla, samkvæmt UBS.
**********
Road fuel demand in Norway has remained relatively stable even with soaring EV adoption, raising questions about whether EVs really have a material impact on diesel and gasoline sales, Rystad Energy said last year.
The lack of a noticeable dent in oil demand in a country where EVs are 90% of all new car sales is a cautionary tale for those predicting an immediate drop in oil demand due to rising EV sales, according to UBS.
Með öðrum orðum: Miklu fé eytt í ekki neitt. Nákvæmlega. Ekki. Neitt.
En núna vill ég ekki spilla veislunni með staðreyndum. Vissulega eru borgarbúarnir sem keyra styttri vegalengdir ánægðir með sig og rafmagnsbílana sína. En þeir sem þurfa langdræga, trausta, hagkvæma og vel þróaða bíla láta ekki glepjast.
Um leið má nefna að ef eftirspurn eftir afurðum hráolíu minnkar á einum stað þá þrýstir það verði niður og örvar notkun á öðrum stað. Þannig eru öll kolin sem Vesturlönd þykjast ekki ætla að kaupa lengur einfaldlega að fara til Kína, Indlands og Indónesíu í staðinn, á afslætti.
Þetta hlýtur að taka á taugar þeirra sem telja brennslu á jarðefnaeldsneyti vera undanfara heimsendis. Það er sama hvað er hert að, skattlagt, niðurgreitt, talað gegn og framleitt af hræðsluáróðri - mannkynið virðist ætla að sækja í sína orku sama hvað! Orku til að dafna, auðgast, hita sér, kæla sig, framleiða rafmagn og knýja verksmiðjur.
Skammist ykkar, eins og ónefnd stúlka sem hafði flosnað úr námi til að ferðast um heiminn á kostnað milljarðamæringa með einkaþotur í bílskúrnum sagði svo eftirminnilega.