Moderna upplýsti á föstudaginn að fyrirtækið hefði innkallað 764.900 skammta af COVID-19 bóluefninu sínu, framleitt af verkafyrirtækinu Rovi, eftir að það uppgötvaðist að í einu glasinu hafi fundist óþekkt aðskotaefni.
Engin hættumerki hafa komið fram sagði Moderna í sambandi við loturnar sem dreift var í Noregi, Póllandi, Portúgal, Spáni og Svíþjóð í janúar sl.
Bóluefnaframleiðandinn sagði að efnið hefði aðeins fundist í einu glasi og verið væri að innkalla öll glösin í varúðarskyni. Ekki var gefið upp hvað fannst í glasinu.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Moderna innkallar bóluefni sitt. Í ágúst 2021 innkallaði fyrirtækið 1,6 milljónir skammta í Japan vegna óhreinna málmtegunda.
One Comment on “Moderna innkallar 764,900 skammta af bóluefni vegna aðskotaefnis – ekki gefið upp hvert efnið er”
Reuters ad reyna ad synast åbyrgt? Og thå hvers vegna eftir allar lygarnar og skodana styringarnar?