31 árs gömul vaxtaræktarkona deyr skyndilega

frettinErlentLeave a Comment

Stacey Cummings, 31 árs bandarísk atvinnukona í vaxtarækt, lést skyndilega á miðvikudag og hefur dánarorsök ekki verið gefin upp.

Dauði Cummings er það nýjasta af fjölda skyndilegra dauðsfalla í vaxtaræktarheiminum undanfarið. Í síðustu viku lést Cedric McMillan eftir hjartaáfalli, 44 ára að aldri.

Hún keppti í bikinídeild 2021 IFBB Texas Pro og var eigandi Flex Fitness 24/7 líkamsræktarstöðina í McKinney, Texas, ásamt eiginmanni sínum og vaxtaræktarmanninum Bryant Fight. Þau áttu saman tvö börn.

Cummings hafði sett inn mynd af sér á Instagram daginn sem hún lést.


Skildu eftir skilaboð