Gögn frá stjórnvöldum í Ástralíu sýna að sjö daga meðaltal dauðsfalla vegna Covid-19 voru 72 á dag í mars sl. Þegar fyrsta bylgja heimsfaraldursins skall á landið í mars 2020 var sjö daga meðaltalið aðeins fjögur dauðsföll á dag. Það jafngildir 1700% prósenta aukningu dauðsfalla af völdum COVID-19.
Þá sýna opinberar tölur frá ríkisstjórn Nýja Suður-Wales (NSW) að allan marsmánuð voru bólusettir 84% þeirra sem létust vegna Covid-19.
Hvað gerðist á milli áranna 2020 og 2022?
Það örlagaríkasta sem gerðist á milli mars 2020 og mars 2022 eru fjöldabólusetningarnar með tilraunabóluefnunum við COVID-19. Það er það sem gerðist: COVID-19 tilraunabóluefnum var sprautað í fólk.
Í mars 2020 voru Ástralir með öflugt náttúrulegt ónæmiskerfi. Engin COVID-19 bóluefni voru til og meintur upprunalegur stofn veirunnar olli mun alvarlegri sýkingum en síðari stökkbreytt afbrigði veirunnar.
Núna eru COVID-19 tilraunabóluefnin orðin mjög útbreidd og náttúrulegt ónæmi er varla til staðar meðal þeirra bólusettu.
Tengsl milli örvunarskammta og dauðsfalla
Fyrsta bylgja heimsfaraldursins sem skall á Ástralíu var minnst alvarleg. Önnur bylgjan sem skall á landið í ágúst 2020 var alvarlegri. Síðan fækkaði dauðsföllum niður í næstum núll þremur mánuðum áður en fyrsta COVID-19 tilraunabóluefnið var gefið í landinu og héldust dauðsföllin nánast í núlli þar til í ágúst 2021.
Þá fór Ástralía í gegnum bylgju dauðsfalla sem var sambærileg við ágústbylgjuna 2020, en stóð miklu lengur og fór aldrei niður í núll aftur. Dauðsföllum fækkaði þó stöðugt aftur þar til bólusetningarherferðin hófst og dauðsföllum fjölgaði aftur á ógnarhraða.
Stærsta bylgja dauðsfalla átti sér stað núna í janúar og dauðsföllin eru fleiri en í fyrri bylgjum. Dauðsföllum heldur síðan áfram að fjölga.
Fyrirliggjandi gögn benda til tengsla milli gefinna COVID-19 örvunarskammta og dauðsfalla meðal bólusettra.
One Comment on “Ástralía: 1700% aukning dauðsfalla eftir fjöldabólusetningarnar”
Nýjustu tölur um bóluefna skaðann á Englandi. Spítala innlagnir og dauðsföll rúmlega tvisvar sinnum algengari á meðal þrí bólusetra heldur en hinna.
https://www.youtube.com/watch?v=a8kdH2Xgf-k&t=905s