Þýskur hjúkrunarfræðingur sem gaf allt að 8.600 eldri borgurum í Friesland í Þýskalandi saltvatnslausn í stað Covid-19 bóluefnis er frjáls ferða sinna eftir úrskurð dómstóls.
Hjúkrunarfræðingurinn, Antje T. 39 ára, sem fjölmiðlar hafa nefnt "anti-vaxx hjúkrunarkonu" var sakfelld fyrir sex ákæruliði fyrir ásetning en fékk aðeins sex mánaða óskilorðsbundinn dóm.
Það var héraðsdómur í Oldenburg í Neðra-Saxlandi sem kvað upp dóminn þann 30. nóvember sl.
Antje T. sprautaði allt að 8.600 manns sem voru aðallega starfsmenn sjúkrahúsa, kennarar og læknar eldri en 70 ára, á tímabilinu 5. mars til apríl 2021, og „skildi því fólkið eftir varnarlaust gegn veirunni.“
Lögreglan sagði fyrir dómi að Antje T. hafi getað sett saltvatnslausn í sprauturnar óséð, þar sem hún sá ein um bólusetningar á vakt sinni á bólusetningarstöðinni Schortens í Friesland.
Eftir rúman mánuð tilkynnti annar starfsmaður Antje T. sem sá til hennar nota saltlausnina í stað bóluefnisins á sex sjúklinga þann 21. apríl 2021.
Ekki fylgir fréttinni hvernig saltvatnslausnþegum reiddi af í faraldrinum.
Lesa má nánar um málið í Daily Mail.
2 Comments on “Hjúkrunarfræðingur frjáls ferða sinna eftir dóm – gaf saltvatnslausn í stað „bóluefnis“”
Spurningin ætti að vera, hverjir af saltvatns þegunum sprautuðu aðra með eitrinu eða þrýstu á aðra taka það.
Þetta er plat frétt. Ég fann ekki neitt sem um þetta mál. Ekki einu sinni nöfnin á þessu fólki.