Landsvirkjun yrði seld einkaaðilum vegna samkeppnissjónarmiða EES

frettinOrkumál, Viðtal2 Comments

Haraldur Ólafsson prófessor í veðurfræði við Háskóla Íslands var gestur Arnþrúðar Karlsdóttur og Péturs Gunnlaugssonar á Útvarpi Sögu í gær. Haraldur sagði meðal annars að ef svo færi að Ísland hleypti hér inn stórum evrópskum orkufyrirtækjum að til að reisa vindmyllur í þeim tilgangi að framleiða rafmagn fyrir Evrópu kæmi sá tími að stórfyrirtækin myndu fara fram á að ríkið seldi Landsvirkjun.

Ástæðan er samkeppnissjónarmið EES samningsins og sagði Haraldur að fólk yrði að hafa í huga að orkustefna ESB geri ráð fyrir því að orkuframleiðsla sé í eigu einkaaðila og þar sjái menn fyrir sér að hvert einasta fljót verði meira eða minna í eigu eins fyrirtækis og þá kunni einhverjir að spyrja hvort það væri ekki óþarfi að selja Landsvikjun.

„Það er aftur á móti þannig að fyrr eða síðar munu þær aðstæður koma upp að einhverjir teldu skynsamlegt að selja Landsvirkjun og þá yrði það ekki aftur tekið,“ sagði Haraldur.

„Það kemur einhver aðili og bendir á að hér sé ríkisrekið orkufyrirtæki sem gangi ekki upp því það sé ríkisstyrkt og fái hagstæð lán og á endanum verður niðurstaðan sú að það sé engin leið að tryggja frjálsa og eðlilega samkeppni öðruvísi en að ríkið losi sig algjörlega út úr þeim rekstri, sem þýðir að ríkið þurfi að selja orkufyrirtækin.“

Arnþrúður tók undir með Haraldi og sagði að á endanum yrði ríkið skyldað til að selja Landsvirkjun, annars yrði hætta á samingsbrotamáli gegn Íslandi.

„Þar af leiðandi er líka verið að taka inn vindmylluhlutann sem þriðju stoðina, þ.e.a.s  vegna samkeppnissjónarmiða EES.“


Viðtalið má hlusta á hér.

2 Comments on “Landsvirkjun yrði seld einkaaðilum vegna samkeppnissjónarmiða EES”

  1. Búinn að segja þetta í mörg ár.. Afhverju haldið þið synir XD eru enn í ríkisstjórn.. Þeir eru þar til að tryggja sitt. Enda gjörspilltir með öllu eins og restin af þessari sorglegum pólitíkusum.

Skildu eftir skilaboð