Brynjar Níelsson fyrrum alþingismaður segir frá því á facebook að hann sæki nú þagnarnámskeið hjá Karli Th. Birgissyni þar sem hann lærir listina að kunna að þegja eða halda kjafti eins og Karl Th. hafi orðað það.
Þetta er námskeið sem er ætlað öðrum en vinstri mönnum, segir Brynjar, og er fjármagnað af Samfylkingunni og Pírötum með peningum úr ríkissjóði. Þá hafa vinstri flokkarnir boðið upp á námskeið hvernig misfara á með skattfé en láta það líta út sem manngæsku, bætti Brynjar við.
En þar sem Brynjar er að læra listina að þegja ætlar hann á næstunni að birta texta eftir aðra en sig sjálfa og byrjar á því að birta völvuspá fyrir næsta ár sem gömul kona úr vesturbæ sendi honum og vildi koma á framfæri. Svona hljóðar spáin:
Ólga í fjölmiðlaheiminum og mótmæli á Austurvelli
Bótagreiðslur úr ríkissjóði stóraukast
Píratar flytja til Íran
Dregur úr loftslagskvíða og geðsjúkum haldið heima
Ástandið í Reykjavíkurborg mun batna mikið þegar líður á árið. Það mun hætta að snjóa í sumar þegar þjónustuhandbækurnar verða loksins uppfærðar eftir þrotlausa vinnu margra starfshópa. Jafnframt mun draga úr loftslagskvíða meirihlutans í borginni og orðið hamfarahlýnun mun heyrast sjaldnar. Ég sé að borgin ætlar að taka á fjárhagsvandanum með því að syngja á fundum borgarstjórnar og halda geðsjúkum heima hjá sér. Þess á milli ætlar meirihlutinn í borginni að skála í kampavíni saman á Kjarvalsstofu til að fagna því hversu æðisleg þau eru.
Ár erfiðleika hjá ÁTVR og RÚV
Mikilvægustu ríkisfyrirtækin, ÁTVR og RÚV, munu eiga erfitt uppdráttar á nýju ári. Á endanum nennir enginn að hlusta á sama fólkið í Vikunni hjá Gísla Marteini upphefja sjálfan sig og tala illa um aðra og endalausar fréttir frá fréttastofunni um hamfarahlýnun, kynsegin fólk og mannvonsku sem fylgir hvalveiðum. Þá mun RÚV afleggja allar siðareglur um starfsmenn sína sem og aðrar reglur enda almannaútvarp í almannaeigu. Enn erfiðara verður árið fyrir ÁTVR. Landsmenn eru komnir á þann stað að vilja kaupa áfengi annars staðar en í verslunum ÁTVR eins og þeir vildu á sínum tíma kaupa mjólkurvörur í öðrum búðum en mjólkurbúðum. Mér sýnist samt ÁTVR lifa árið af og jafnvel lengur ef framsóknarmenn í öllum flokkum verða svona margir áfram.”
Svo mörg voru orð völvunnar, sagði Brynjar og bætti því að völva þessi hafi reynst sannspá í gegnum tíðina, hún hafi til að mynda spáð jarðhræringum og eldgosum á Íslandi, sem hefur heldur betur reynst rétt. Ekki á hvers manns færi að sjá það fyrir.
Brynjar segist hafa sleppt því úr spánni sem gæti verið móðgandi fyrir einhverja því það sé kennt á námskeiðinu um listina að þegja að ritstýra og þagga niður allt sem er óþægilegt. Það er kennt í kaflanum um hatursorðræðu en það hugtak var fundið upp á gamla Þjóðviljanum, sagði Brynjar að lokum í færslu sinni sem má sjá hér neðar.
Nú er sjá hvort sú gamla verði jafn sannspá og fyrri ár.