Eftir Hall Hallsson:
Á dögunum rakti Tucker Carlsson á Fox News tengsl CIA við morð John F. Kennedy forseta Bandaríkjanna 22. nóvember 1963. Af því tilefni skrifaði bróðursonur forsetans, Robert Kennedy jr: „Morð CIA á frænda mínum var velheppnað [successful] Coup d‘Etat sem lýðveldi okkar hefur aldrei jafnað sig á.“ Þáttur Tucker á Fox News er vinsælasti fréttaþáttur Ameríku, svo tíðindin eru allnokkur. CIA er ríki í ríkinu. Lee Harvey Oswald var handtekinn fyrir morðið, sagður “lone gunman“ en skotinn til bana af öðrum "lone gunman" að nafni Jack Ruby. Ég var tólf ára þegar Kennedy var myrtur í Dallas Texas. Drengurinn í Bústaðahverfi frétti af morðinu í mjólkurbúðinni og hljóp heim til að segja tíðindin. Það var mín fyrsta frétt.
Sagt er að þeir sem véfengi amerískt “intelligence community“ stefni eigin lífi í hættu. Friðarsinninn Kennedy hafði tekist á við “repugnant secret societies – fyrirlitleg leynifélög“ og 3. júní 1963 undirritað forsetatilskipun No. 11110 að taka upp silfurdollar sem styggði Federal Reserve, Seðlabanka Bandaríkjanna. Hundrað árum áður hafði Abraham Lincoln forseti [1861-1865] hafnað lánum "evrópska bankers", gefið út greenbacks til að fjármagna stríðsreksturinn gegn Suðurríkjunum og galt með lífi sínu. Þriðji forsetinn til að takast á við "evrópska bankers" er Donald J. Trump. Þann 12.september 2018 undirritaði hann forsetatilskipun No. 13848 um árás á Bandaríkin.
The most courageous newscast in 60 years. The CIA’s murder of my uncle was a successful coup d'état from which our democracy has never recovered. @TuckerCarlson https://t.co/qJ1sUdhe4t
— Robert F. Kennedy Jr (@RobertKennedyJr) December 17, 2022
60 ára þöggun
Í 60 ár hefur morðið á Kennedy verið tabú í Ameríku sem ekki hefur mátt nefna. Fjölmargir hafa efast um niðurstöðu Warren nefndarinnar þess efnis að Oswald hefði myrt Kennedy. Fyrir morðið á Kennedy var orðið “conspiracy theory“ -samsæriskenning óþekkt í ensku. Árið 1964 var New York Times fyrst til að nefna hugtakið. Árið 1967 sendi CIA tilskipun til starfsstöðva víða um heim “directive on conspiracy theory“ í tengslum við morð Kennedy.
CIA hefur haldið upplýsingum um morð Kennedy frá bandarískum almenningi allar götur síðan, þar á meðal tengsl sín við Lee Harvey Oswald. Árið 2017 bar CIA að birta öll skjöl, þúsundir blaðsíðna. Það gerðist ekki. Ríkið í ríkinu fer sínu fram. Tucker hafði eftir heimildarmanni að CIA hefði verið þátttakandi í morðinu á Kennedy. Hvað þýðir það? spurði Tucker og svaraði: „Innan bandarískrar stjórnsýslu eru öfl sem eru utan og ofan við kjörna fulltrúa.“ Ameríka veit nú að forsetar eru valdir en ekki kjörnir. Er umfjöllun Tucker á Fox News vísbending um að molni undan CIA?
Charles Schumer leiðtogi demókrata sagði í janúar 2017 fyrir embættistöku Donald Trump að hann væri “dumb“– kjáni að takast á við leyniþjónustur Washington: „Þeir hafa sex aðferðir frá sunnudegi til að ná sér niðri á þér – six ways from Sunday at getting back at you.“ Þeir skálduðu RussiaHoax - Rússagaldur sem stóð á þriðja ár. Þremur vikum fyrir kosningar 2020 hylmdu CIA og FBI yfir frétt New York Post um Laptop from Hell Bidenfeðga – Tölvuna úr Helvíti sem CIA uppnefndi Russia-Hoax Rússagaldur. FBI hafði haft tölvuna til rannsóknar í 10 mánuði án þess að aðhafast. Það er yfirhylming á barnaníði, mansali og kolsvartri spillingu. Hlýðnir fals- og samfélagsmiðlar þögguðu; NYT, WaPo, CNN, BBC, Facebook, Youtube, Google, Twitter, RÚV & rest.
Gamli Bush og Kennedy
Margar bækur og heimildamyndir hafa verið gefnar út um morðið á Kennedy. George W.H. Bush varaforseti [1981-1989] forseti [1989-1993] var cia-agent í Texas þegar Kennedy var myrtur. Bush er ítrekað tengdur við morðið í Dallas. Aðspurður kvaðst Bush ekki muna hvar hann var þegar Kennedy var myrtur og neitaði cia-tengslum. Samt kemur hann fyrir í skjölum sem slíkur og á myndum í Dallas. Bush var forstjóri CIA 1976-77. Frægust kvikmynda um Kennedy-morðið er JFK eftir Oliver Stone.
Frá stofnun Federal Reserve 1913 hefur ófriður ríkt og plágur geisað í veröld. Fed er undirstaða skuggastjórnar veraldar. Allar götur frá morði Kennedy hefur bandarísk saga verið samfelld harmsaga styrjalda, plága og vofleiflegra skotárása; jafnan “lone-gunman“ á ferð. Martin Luther King var myrtur í apríl 1968 af “lone gunman“. Robert Kennedy var myrtur í LA í júní 1968 af “lone gunman“. John Lennon var skotinn til bana í New York í desember 1980 af “lone gunman“. Ronald Reagan var sýnt banatilræði í mars 1981 af “lone-gunman“. Reglulega kemur til skotárása í bandarískum skólum, jafnan er “lone gunman“ á ferð.
Kennedy jr. 1960-1999
John F. Kennedy jr. [1960-1999] fórst undan strönd Martha‘s Vinyard í Massachussetts í júní 1999 ásamt eiginkonu og mágkonu. Kennedy hafði áform að bjóða sig fram til öldungadeildar Bandaríkjaþings fyrir New York í nóvember 2000. Margt er á huldu um lát Kennedy jr. Lítil flugvél hans steyptist í hafið, John jr var ekki jarðaður. Margt er ósagt. Í stað Kennedy var Hillary Clinton kjörin í nóvember 2000. Hugleiðið stríðsforseta Ameríku til 30 ára; Clinton, Bush, Obama, Biden.
One Comment on “Kennedy, CIA & lone gunman”
James Files