Tinna Hallgrímsdóttir sem hefur verið ráðin til starfa sem loftslags- og sjálfbærnisérfræðingur Seðlabanka Íslands verður með kynningu í almenningsrými Seðlabankans í dag á milli kl. 15:00-16:00.
Tinna, sem mun starfa á skrifstofu Ásgeirs Jónssonar seðlabankastjóra, og verður því hans hægri hönd í loftslagsmálum, ætlar að kynna fyrir gestum nauðsyn þess að hafa innan bankans sérfræðinga í loftslagsmálum og sjálfbærni, bæði hvað varðar rekstur bankans og þau faglegu markmið sem setja þarf í fjármálaeftirliti, fjármálastöðugleika og peningastefnu til framtíðar.
Seðlabankastjóri mun segja frá því hvernig hamfarahlýnun og verðbólga haldast í hendur og að með lækkandi hitastigi jarðar verði frekar unnt að kæla hagkerfið og slökkva verðbólgubálið.
Þá verður nektarmálverk Gunnlaugs Blöndal, sem fjarlægt var úr almenningsrými bankans árið 2019, hengt upp á ný sem tákn um aukinn kvenleika og feminisma innan bankans.
Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir. Boðið verður upp á vatn og umhverfisvænt ristað snakk sem fyrirtækið engisprettur.is leggur til, segir í fréttatilkynningu seðlabankastjóra síðdegis í gær.
7 Comments on “Nýráðinn loftslagssérfræðingur Seðlabankans kynnir breyttar áherslur og stefnur”
Á maður að hlæja eða gráta yfir heimskunni sem ræður ríkjum í heiminum? Ætlar seðlabankastjórinn að hafa stjórn á hitastiginu líkt og hann hefur ´stjórn´ á verðbólgunni?
Við ættum að gefa þessari ungu konu tækifæri í stað þess að vera alltaf að skammast, það er unga fólkið sem finnur nýjar áherslur sem á eftir að laga það sem hefur misfarist hingað til. Hlustum að minnsta kosti á þær tillögur sem hún hefur fram að færa.
Þetta er eitthvað svo steikt að þetta hlýtur að vera apríl gabb ????
Mér finnst fáránlegt að vjóða upp á skordýr þegar margt annað gott er í boði. Við erum menn ekki dýr.
Þetta hlýtur að vera aprílgabb
Höfuðpaur mensevista sagði að bolsevistarnir væru með annan fótinn í bankanum og hinn í byltingunni. Núna eru umhverfissinnarnir búnir að koma sér fyrir við kjötkatlana! Það er ekki tilviljun að seðlabankastjóri er sonur aðal kommúnista landsins. Umhverfissinnarnir munu spila stóra rullu í að fjötra okkur, vesalingana.
Ágætis Aprílgabb hér á ferð.
HInsvegar; þá sjáum við svona fréttir hvað eftir annað í fjölmiðlum á öðrum dögum en 1. Apríl. Og þá eru menn að meina það sem þeir segja (sorglegt er það).