Eftir Pál Vilhjálmsson kennara:
Kennarasamband Íslands hljóp á sig þegar það fordæmdi Morgunblaðsgrein Helgu Daggar Sverrisdóttur kennara. Helga vekur athygli á einföldum staðreyndum sem á ekki að þurfa að segja upphátt, t.d.
Ég tel það særandi og móðgandi að segja barni að það sé kannski í öðrum líkama. Sé ekki það kyn sem það fæddist. [...] Barn hefur ekki þroska, getu eða þor til að mótmæla slíku.
og
Það er vanvirðandi háttsemi við barn og foreldra þess að halda því fram að heilbrigðisstarfsfólk geti sér til um kyn barnsins við fæðingu. Samkvæmt Mannréttindadómstólnum er það ekki dregið í efa, líffræðilegt kyn er það kyn sem barn fæddist og verður. Veggspjöld hanga uppi í leikskólum sem draga líffræðina í efa, særandi og vanvirðandi háttsemi.
Allt er er þetta laukrétt hjá Helgu, hversdagsleg sannindi, sem á ekki að lasta heldur lofa. Ef það er tilfellið að börnum er kennt að kyn sé ekki líffræðilegt, heldur hugdetta, er vanþekkingu haldið að börnum. Ef það er kennt að það sé „ágiskun“ við fæðingu af hvoru kyni nýburinn er þá verður að grípa í taumana og forða börnum frá fáviskunni.
Kennarasamband Íslands ætti hið snarasta að biðja Helgu Dögg afsökunar. Helga Dögg talar fyrir heilbrigða skynsemi. Eins og málin standa núna er KÍ fylgjandi afmenntun og vanþekkingu. Fáviska hefur ekkert með mannréttindi að gera.
Ekki fer vel á því að stéttafélag kennara gangi sértrúarhópum á hönd sem telja jörðina flata, kynin fleiri en tvö og að hægt sé að fæðast í röngum líkama. Fáviska í nafni mannúðar er ekki boðleg afstaða þeirra sem kenna sig við menntun og þekkingu.
One Comment on “Kennarasamband Íslands biðji Helgu Dögg afsökunar”
Heyr heyr Páll… Helga Dögg segir það sem margir vilja segja en er skotin í kaf af öfgum… Almenn skynsemi virðist hafa týnst eða hreinlega gufað upp.