Páll: „Já.“ Og hann hélt áfram: „Ég hef verið mjög ákveðinn þegar kemur að rannsókninni. Ég get til dæmis nefnt sem dæmi að þegar ég mætti á lögreglustöðina í skýrslutöku þá rak ég fyrstu tvo rannsóknarlögreglumennina út. Annar er æskuvinur minn frá Raufarhöfn og ég sagði bara við hann „Þú kemur ekki nálægt þessari rannsókn“ og þá kom annar. Ég bað hann líka að fara því hann tengdist öðrum brotaþola í málinu. Ég var þá spurður hvað ég vildi og ég sagði „Ég vil bara fá manneskju hingað inn sem hefur engin tengsl við mig og ekki tengsl við Samherja, punktur. Ég vil bara fá rannsókn þar sem ég get treyst því hún sé ekki lituð af tenginu við fyrirtækið eða mig.“ Og ég geymdi þetta nafn alveg þar til í desember,“ sagði Páll brosandi og leit á Evu lögmann. „Þá vorum við Eva að ræða saman og hún var að segja eitthvað og ég sagði „Nei, þetta er rangt hjá þér“ og þá sagði ég henni þetta og hún sagði „Páll, þetta er ekki í lögregluskýrslu.“ Ég sagði: „Nei, það er lögreglurannsókn í gangi og ég ætla ekkert að fara að benda á einhvern, mér finnst það ekki vera mitt hlutverk í lögreglurannsókn. Lögreglan bara rannsakar mál, punktur“.“
Frosti: „Og þú hefur ekki nefnt þetta nafn í lögregluyfirheyrslum?“
Páll: „Jú, jú, Eva fór fram á að ég myndi gera það. Svo kom það í ljós seinna meir að að aðrir fjölskyldumeðlimir vissu þetta.“
Frosti: „Sem þeir höfðu þá heyrt það frá fyrrverandi eiginkonu þinni?“
Páll: „Já. Og báðar dætur mínar bera fyrir sig 110 grein sml. Þær munu ekki bera vitni. Það kemur bara ekki til greina.“ Þarna beygir Páll aftur af og segir: „Þá bara tapa ég málinu, mér er sama. Þú setur ekki börn í þessar aðstæður.“
Myndbrot úr þættinum má sjá hér:
One Comment on “Páll Steingrímsson ræðir „símamálið“ í þætti Frosta Logasonar”
Ég hef fulla trú á því að Páll Strimgrímsson sé að segja rétt frá
Ég vona að lögreglan og dómskerfið vinni þetta mál faglega og þeir sem frömdu þennan verknað fái þunga dóma!