Fréttin.is spurði Sound of Freedom hetjuna og leyniþjónustumanninn Tim Ballard, sem bjargað hefur þúsundum barna frá kynlífsánauð, hvort hann hafi heyrt af barnaníðs og mansalsmálum í Úkraínu?
„Já reyndar kemur bráðlega út heimildarmynd sem Mel Gibson og Tony Robbins framleiða. Við fórum til í Úkraínu í fyrra og þar tókum við upp efni sem snýr að munaðarlausum börnum, sem eru fórnarlömb stríðs“, segir Ballard.
Ballard segir að leyniþjónustan hafi uppgötvað barnaníðinganet sem eru tengd stjórnmálasamtökum í Hollandi, og hafa verið í felum. Þetta eru þekktir barnaníðingar sem hafa verið handteknir fyrir fjölda glæpa gegn börnum.
„Barnaníðingarnir földu sig svo Suður-Ameríku og við fórum á eftir þeim og fundum leiðtoga þeirra í Mexíkó.“
Þeir voru síðar handteknir og höfuðpaurinn fundum við svo í Ekvador, þar hann var að koma sér upp barnakynlífshóteli. Litlir strákar voru misnotaðir þar hrottalega. „Þetta er sennilega ein mikilvægasta aðgerð sem ég hef tekið þátt í og stærri en Sound of Freedom aðgeðin,“ segir Ballard.
Um er að ræða fjögurra hluta heimildarþáttaröð sem heitir The Hidden War og fjallar um kynlífsþrælkun nútímans, og kemur út á næstu mánuðum.
Kvikmyndin Sound of Freedom er sýnd um þessar mundir í Sambíóunum.: