Fjölmiðlamaðurinn Sölvi Tryggvason, sem heldur úti hlaðvarpinu Podcast með Sölva Tryggva, hefur setið við skriftir síðustu mánuði. Á miðvikudaginn kemur út bókin Skuggar en hún segir frá örlagaríkum tímum í lífi Sölva, þar sem hann var ranglega bendlaður við svívirðilegan glæp. Bókin er saga falls, útskúfunar, upprisu og uppgjörs.
Um bókina:
„Skuggar segir frá örlagaríkum tímum í lífi Sölva Tryggvasonar. Ósönn slúðursaga, þar sem hann var ranglega bendlaður við svívirðilegan glæp, fór á flug á samfélagsmiðlum og fjölmiðlar hentu hana á lofti. Við tók hvirfilbylur samfélagsumræðunnar sem jókst enn með tilkynningu um að konur hefðu kært Sölva til lögreglu. Á einni viku fór hann frá hápunkti ferils síns yfir í að missa mannorð sitt og lífsviðurværi. Fallið var hátt, Sölva var útskúfað úr samfélaginu og lagði á flótta út í lönd. Það ferðalag var ekki síður inn á við þar sem hann reyndi að skilja hvað hefði gerst og brá um leið ljósi á sína dýpstu skugga, myrkur og áföll.
Annar maður hefur nú verið dæmdur fyrir þann glæp sem Sölvi var bendlaður við og lögregla hefur vísað frá öllum kærum á hendur honum. En var það helber tilviljun að einmitt nafn Sölva skildi fléttast inn í þessa harkalegu atburðarás, eða höfðu stórir brestir sem hann burðaðist með komið í bakið á honum? Sölvi leiðir lesandann með sér í þetta afdrifaríka ferðalag þar sem hann snýr öllum steinum við til að reyna að skilja hvernig þetta allt gat gerst, veltir samfélagsumræðunni fyrir sér og þætti fjölmiðla. Skuggar er uppgjör Sölva við sjálfan sig og samfélagið allt,“ segir á vef bókaútgáfunnar Sögur Útgáfa.
Hægt er að skrá sig í útgáfuteiti Sölva Tryggvasonar hér.