Heimsmarkaðsverð á gulli heldur áfram að hækka og komst um helgina í hæsta verð sem nokkurn tíma hefur verið að minnsta kosti í sænskum krónum reiknað eða sek. 22 þúsund korónur fyrir troyúnsu. Á alþjóðavísu var hæsta verðið 2.006 dalir eða 1.885 evrur á tróyúnsu.
Minni eftirspurn eftir bandarískum ríkisskuldabréfum kynti undir hækkun gullsins en miklar áhyggjur eru vegna ástandsins í bandarísku efnahagslífi. Vextir á tíu ára bandarískum ríkisskuldabréfum eru í fyrsta sinn yfir 4,9% síðan 2007.
Samtímis verður efnahagsástandið sífellt verra í Bandaríkjunum, þar sem svæðisbankar tilkynna um 600 milljarða dollara tap á útlánum til atvinnuhúsnæðis, sem einnig hefur áhrif á hækkun gullverðs. Bandaríski sjóðsstjórinn Larry Lepard segir í viðtali við Kitco:
„Allir vita að eitthvað mun fara úrskeiðis og að hrun er væntanlegt á svipaðan hátt og 2008. Það mun verða endalaus hörmung.”
![](https://i0.wp.com/frettin.is/wp-content/uploads/2023/10/gold_5_year_o_x_sek.png?resize=547%2C361&quality=80&ssl=1)
Gullverð hefur næstum tvöfaldast síðan 2019 (mynd © goldprice.org).
One Comment on “Gullverðið setur nýtt met”
Maður hefði átt að kaupa gull áður en þetta fór að hækka svona