Fjölmiðlar hafa logið miklu: Tucker Carlson stofnar fréttamiðil

frettinErlent, Fjölmiðlar, Gústaf Skúlason2 Comments

Gústaf Skúlason skrifar:

„Fjölmiðlarnir hafa logið of miklu á undanförnum árum. Svo núna er kominn tími á, að alvöru fréttarás taki við.” Þetta segir blaðamaðurinn góði, Tucker Carlson. Hann hefur stofnað sinn eigin fréttamiðil sem heitir Tucker Carlson Network, TCN.

„Almennir fjölmiðlar hafa ástundað svo miklar lygar, að þeir hafa meira og minna framið sjálfsmorð.“ Þetta segir fjölmiðlamaðurinn Tucker Carlson í nýju myndbandi á X.

Fólk þyrstir í sannleikann

Lygarnar eru svo yfirgengilegar að fólk hungrar eftir alvöru fréttum. Þess vegna er fyrrum Fox stjarnan að hefja störf í eigin fréttamiðli: TCN, Tucker Carlson Network. Tucker Carlson útskýrir í kynningarmynd um stofnun TCN:

„Þeir halda því fram, að þeir sem kveiktu í Wendy’s hafi verið „að mestu friðsælir”. Þeir sögðu munnhlífar virka. Þeir fullyrtu að bóluefnið væri öruggt. Þeir eru að reyna að sannfæra þig um að Rússland hafi sprengt sína eigin gasleiðslu.”

„Fjölmiðlarnir lugu of mikið og það hefur drepið þá.”

Fréttarás Tucker hefur þegar fengið meira en 320. 000 fylgjendur á X.

2 Comments on “Fjölmiðlar hafa logið miklu: Tucker Carlson stofnar fréttamiðil”

  1. Flott hjá Tucker Carlson!
    Það er ágætt að það sé mótbára gegn anskotans glóbalista-fasista fjölmiðlunum sem virðast vera nær allsráðandi hér á vesturlöndum, Ísland er þar engin undantekning með sinn stóra stuðningshóp.

Skildu eftir skilaboð