Lífeyrissjóðirnir töpuðu um 845 milljörðum árið 2022

frettinInnlent1 Comment

Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR, segir frá því á facebook að árið 2022 hafi  lífeyrissjóðirnir tapað um 845 milljörðum króna.

Rekstrarkostnaður fimm stærstu sjóðanna var 20,8 milljarðar. Þar af voru fjárfestingargjöld 15 milljarðar (þrátt fyrir gríðarlegt tap) þá bætist við skrifstofu og stjórnunarkostnaður samtals 5,8 milljarðar króna.

Formaðurinn greinir jafnframt frá því að launagreiðslur til framkvæmdastjóra fimm stærstu sjóðanna, námu 167 milljónum á árinu 2022 eða að meðaltali 33,4 milljónir á hvern, þetta séu aðeins fimm lífeyrissjóðir af 21.

Ragnar segir að von sé á miklu tapi á árinu 2023 og því ljóst að margir sjóðir muni skerða réttindi.

Eignir lífeyrissjóðanna árið 2022 lækkuðu um 763 milljarða að raunvirði frá árinu 2021 samkvæmt tölum Seðlabankans og Landssamtaka lífeyrissjóða.

Mismunur á iðgjöldum í samtryggingardeildir (289,4 milljarðar, séreignasparnaður dregin frá) og útgreiðslum samtryggingardeilda (207,3 milljarðar) var 82,1 milljarður sem bætist við virðisrýrnun eigna á milli ára. Má því álykta að tap lífeyrissjóðanna á síðasta ári (2022) hafi verið um 845 milljarðar. 

Færsluna má sjá hér neðar:

One Comment on “Lífeyrissjóðirnir töpuðu um 845 milljörðum árið 2022”

Skildu eftir skilaboð