Jólatréð er nýr óvinur loftslagsaðgerðarsinna

frettinErlent, Gústaf Skúlason1 Comment

Gústaf Skúlason skrifar:

Þýska Bild segir frá því, það þýskir loftslagsaðgerðarsinnar ráðist á jólatré á opinberum stöðum og eyðileggi þau með því að sprauta rauðri málningu á þau.

Loftslagsaðgerðarsinnar frá hópnum Síðasta kynslóðin úðuðu jólatré á almenningssvæðum með appelsínugulri málningu í Berlín og sex öðrum þýskum borgum í vikunni. Réðust þeir meðal annars á jólatré á Potsdamer Platz og fyrir utan byggingar hins opinbera í þýsku höfuðborginni. Síðasta kynslóðin segist einnig hafa unnið skemmdarverk á jólatrjám í Kiel, Leipzig, München, Nürnberg, Rostock og Oldenburg.

Jólin fá okkur til að gleyma heimsendaspánni

Árásirnar voru samræmdar þannig að þær gerðust allar á sama tíma klukkan 10 að staðartíma. Til að réttlæta aðgerð sína skrifar Síðasta kynslóðin á X:

„Meðal tindrandi ljósa, glitrandi skreytinga og hátíðlegs andrúmslofts er auðvelt að gleyma: Við erum á fullri ferð í átt að hörmungum og ríkisstjórn okkar mistókst að taka í handbremsuna í Dubai.”

Hindruðu sjúkrabíla að komast að sjúkrahúsi með skelfilegum afleiðingum

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem hópurinn notar jólin til að koma boðskap sínum á framfæri. Í fyrra reyndi hópurinn að taka yfir jólasjónvarpsþátt í beinni en lögreglan hafði afskipti af þeim áður en þeim tókst að framkvæma áætlun sína. Síðasta kynslóðin hefur beitt svipuðum aðferðum og aðrir öfgahópar í loftslagsmálum eins og „Extinction Rebellion” og „Just Stop Oil” sem líma sig við þjóðvegi og eyðileggja fræg listaverk á listaverkasöfnum.

Eitt umdeilt atvik var, þegar kona varð heiladauð eftir að sjúkrabíl hennar var tafinn af aðgerðasinnum Síðustu kynslóðarinnar sem lokuðu veginum að sjúkrahúsi í Berlín. Hópurinn var einnig mikið gagnrýndur á síðasta ári fyrir að kasta kartöflumús á málverk Claude Monet „Les Meules.”

Bandarískir „velunnarar” greiða þýskum aðgerðarsinnum fyrir skemmdarverk

Í fyrra tilkynnti lögreglan, að hún hefði hafið rannsókn á því hvort flokka ætti Síðustu kynslóðina sem glæpasamtök eftir að samtökin gerðu árásir á olíuhreinsunarstöð við þýsku landamærin að Póllandi. Í fyrra upplýsti Welt am Sonntag, að þýskir loftslagsaðgerðarsinnar fái ríflega greitt í peningum frá „velunnurum“ í Bandaríkjunum fyrir að taka þátt í aðgerðunum allt að 1.300 evrur á mánuði.

Sjá má stríð Síðustu kynslóðarinnar við hin hræðilegu jólatré sem eru upplýst og skrauti skeytt á myndskeiðinu hér að neðan.

One Comment on “Jólatréð er nýr óvinur loftslagsaðgerðarsinna”

  1. Þetta er svakalegt. Og ég þekki einn Baunahatara sem myrti strá í Nauthólsvík, bara af því að þau voru með danska ættartölu. Hvar skyldi þetta enda allt saman.

Skildu eftir skilaboð