Jólalögin hans Klaus: „Ég ætla að ráða öllu í heiminum“

frettinErlent, Gústaf SkúlasonLeave a Comment

Gústaf Skúlason skrifar:

Klaus Schwabb sem sæmdur er verðlaunaorðum miðstjórnar Kommúnistaflokks Kína, gerir það gott á samfélagsmiðlum þessa dagana. Gervigreindinni hefur verið sleppt lausri og hrein unun að sjá hvað henni tekst til með hjálp góðra manna og kvenna.

Glóbalistarnir reyna að koma öllum í gott jólaskap og bjóða upp á ýmis konar pöddugóðgæti á jólaborðið: Maríneraðar engisprettur í Norðurpólsstígvélum, fláðar kóngulær með mandarínbroddum, uppstúfið snákamauk með dýrindis reyktum margfætluleggjum. Lirfugrauturinn með lifandi Sars-covid-19 veiru er svo hinn sjálfsagði eftirréttur svo allir verði saddir og ánægðir.

Ekki minnkar það ánægjuna að allir fá í fyrsta sinn að heyra í alvöru jólabjöllum í ár. Hljómar Herkúlesarbjöllunnar er einstaklega beittur og Golíatbjallan slær út allar kirkjuklukkur. Velkomin í jólaveislu kölska í boði hans hátignar, Klaus Schwab.

Skildu eftir skilaboð