Fyrirmynd vindmylla á Íslandi: skrúfublöðin tætast sundur í roki

frettinErlent, Gústaf Skúlason, Orkumál7 Comments

Gústaf Skúlason skrifar:

Í Bretlandi hefur verið meira rok en venjulega, sem er aðeins smá sýnishorn af því sem íslenska veðráttan getur verið á þeim stöðum sem orkumálaráðherrann leyfir myllufurstum að reisa vindmyllur. Miðað við meðfylgjandi myndskeið er lífshættulegt að vistast í nágrenni slíkra vindorkuvera. Í stað þess að framleiða meira rafmagn, þá tætast skrúfublöðin sundur í roki og brotin þeytast hundruðum metra burtu frá myllustólpanum.

Nýlega náðist ein splundrandi vindmylla á myndband sem núna fer víða um samfélagsmiðla. Sést vel hvernig skrúfublöðin splundrast og þeytast burtu af gífurlegum krafti sem gæti hæglega drepið hvern þann sem verið hefði í veginum.

Kostar rúman hálfan milljarð íslenskar krónur

Atvikið átti sér stað í Ayrshire í Skotlandi og náðist á myndband. Má sjá að trén í kring eru umtalsvert ónæmari fyrir vindhviðum en vindmyllan. Auk hinnar miklu hættu sem steðjar að almenningi er ónýt vindmylla mikið efnahagslegt tjón. Ein vindmylla er sögð hafa kostað rúmlega hálfan milljarð íslenskra króna í byggingu.

Slökkvilið var kallað á vettvang þar sem kviknaði einnig í vindmyllunni sem ekki er óvenjulegt, þegar legur ofhitna og bræða úr sér og eldur kemst í glussaolíu. Sem betur fór í þetta sinn, var eldurinn ekki alvarlegur. Óveðrið sem hefur hlotið nafnið Gerrit og hefur farið yfir hluta Bretlands, hefur einnig valdið öðrum vandamálum. Rafmagnslínur hafa farið sundur meðal annars vegna trjáa sem falla á þær.

Gerrit hafði víða áhrif

Mörg heimili urðu rafmagnslaus og lestarumferð truflaðist. Yfirvöld ráðlögðu íbúum að fara ekki í ferðalög á meðan Gerrit væri á ferð. Ekki hefur verið tilkynnt um manntjón, hvorki í tengslum við vindmyllurnar eða annars skaða sem óveðrið olli. Þök fuku af nokkrum húsum og fólk flúði burtu úr húsum sínum, þótt þau væru talin örugg. Sums staðar var lokað fyrir umferð á vegum þegar vindurinn var hvað mestur. Ferjuumferð og flugi var einnig frestað.

Smellið á spilarann hér neðar til að sjá myndbandið:

7 Comments on “Fyrirmynd vindmylla á Íslandi: skrúfublöðin tætast sundur í roki”

  1. Thank you for the good writeup It in fact was a amusement account it Look advanced to far added agreeable from you However how could we communicate

  2. Thank you I have just been searching for information approximately this topic for a while and yours is the best I have found out so far However what in regards to the bottom line Are you certain concerning the supply

  3. helloI really like your writing so a lot share we keep up a correspondence extra approximately your post on AOL I need an expert in this house to unravel my problem May be that is you Taking a look ahead to see you

  4. certainly like your website but you need to take a look at the spelling on quite a few of your posts Many of them are rife with spelling problems and I find it very troublesome to inform the reality nevertheless I will definitely come back again

  5. Þetta er nú bara nokkuð rétt hjá þér það sem þú ert að segja Gústaf

Skildu eftir skilaboð