Reykjavík orðin að Austur-Evrópskri borg

frettinGeir Ágústsson, Innlent1 Comment

Geir Ágústsson skrifar:

Reykjavíkurborg hyggst sækja um rúmlega 15 milljarð króna lán til Þróunarbanka Evrópuráðsins. Borgin bætist þar í fríðan hóp skjólstæðinga hjá þessum banka sem meðal annars aðstoðar fátæk svæði að taka við flóttamönnum, fátækar borgir að byggja íbúðir fyrir námsmenn og fátæk héröð að efla heilbrigðisþjónustu sína.

Það kemur vonandi engum á óvart að til að bjarga borginni eftir valdatíma fráfarandi borgarstjóra og þeirra flokka sem héldu honum uppi þurfi hreinlega að sækja um þróunaraðstoð. Mikil er niðurlæging Íslands að svona sé komið fyrir höfuðborginni.

Um leið virðist jarðtengingin ekki vera komin á. Borgin er ennþá á kafi í gæluverkefnum og því að flækjast fyrir fólki og fyrirtækjum, hvort sem það er með því að sekta fólk fyrir að leggja í innkeyrslunni sinni eða að gera það nánast ómögulegt að losna við sorp.

Það má finna margt sameiginlegt með meðhöndlun borgarfulltrúa í Reykjavík á skattfé og ráðherra í Stjórnarráðinu. Munurinn er helst sá að lánstraust ríkisins er meira og því getur sóunin og geðveikin gengið yfir lengri tíma. Hún byrjaði líka seinna en hjá borginni. Vegferðin er samt sú sama, og afneitunin sömuleiðis. Íslenska ríkið telur sig ekki hafa efni á skattalækkunum en það er til nóg fyrir alla á meðan þeir eru ekki með íslenskt vegabréf. Innviðirnir fá að grotna niður og hallareksturinn fjármagnaður með svimandi arðgreiðslum úr raforkuframleiðslu vegna orkuskorts sem þrýstir uppi verði og framkvæmdabanns sem fyllir alla framkvæmdasjóði og opnar á arðgreiðslur úr þeim.

Allt eru þetta heimatilbúin vandamál í boði stjórnmálamanna og þar með í boði kjósenda. Það er jú lýðræði, ekki satt?

Reykjavík er komin á sama stað og fátækar borgir í Austur-Evrópu. Hvenær ætli Ísland verði í heild sinni líkara austur-evrópsku ríki en vestur-evrópsku? Eftir einar kosningar eða tvær? Tekið er við veðmálum í athugasemdum.

One Comment on “Reykjavík orðin að Austur-Evrópskri borg”

  1. Lýðræði í landi þar sem eingöngu er hægt orðið að kjósa kommúnistaflokka í öllum regnbogans litum má sannarlega með hárri rentu kallast “Alræði Öreiganna”

    Til Hamingju Ísland 🫣

Skildu eftir skilaboð