Gústaf Skúlason skrifar:
Gleðin yfir lækkuðu eldsneytisverði sem stjórnvöld og Svíþjóðardemókratar innleiddu í Svíþjóð gæti orðið skammvinn. Taka á upp áður óþekkt losunargjald í Svíþjóð árið 2027, sem bætist ofan á eldsneytisverð hjá ökumönnum, flutningafyrirtækjum, húsnæði og öðrum atvinnugreinum.
Um áramótin var lækkunarskyldan í Svíþjóð lækkuð niður í sex prósent sem er lágmark ESB. Lækkunarskyldan er skylda söluaðila bensín og dísils að minnka losun sem hægt er að gera með meiri sölu á endurnýjanlegri orku og einnig með meiri blöndun slíkra efna í bensín og dísil. Um er að ræða losunarskatt. Lækkunin um áramótin hafði jákvæð áhrif á bensín og dísilverð sem lækkaði lítillega. Peder Blohm Bokenhielm frá Eldsneytisuppreisninni „Bränsleupproret“ með 600.000 meðlimi á Facebook segir við Carup:
„Við vöruðum við lækkunarskyldunni þegar árið 2019 upplýstum hvernig hún myndi hafa áhrif á eldsneytisverðið í Svíþjóð. Á þeim tíma trúði okkur enginn þegar við sögðum að verðið gæti farið allt að 30 sænskar krónur lítirinn. Nú hefur Svíþjóð lagað stig sitt að umheiminum sem er að miklu leyti þakka upplýsingastarfi okkar.“
Nú eru hins vegar nýjar hækkanir í gangi sem valda áhyggjum. Eftir þrjú ár munu Svíar kynna nýtt viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir ETS2. Nýir losunarskattar sem ökumenn, flutningafyrirtæki, heimili og aðrir þurfa að greiða munu renna í loftslagssjóð ESB.
532 íslenskar krónur líterinn
Að sögn Peder Blohm Bokenhielm hefur komið fram á fundum með fulltrúum eldsneytisiðnaðarins, að verðið geti farið upp í allt að 532 krónur á líterinn, þegar þessar nýju reglur ESB taka gildi. Í augnablikinu kostar venjulegt bensín undir 252 íslenskar krónur. Eldsneytisuppreisnin varar nú við því að áhrifin á eldsneytisverð kunni að verða langtum meiri vegna ETS2 en áður var reiknað með.
2 Comments on “Nýir losunarskattar ESB munu tvöfalda verð á bensíni og dísel”
Ef orkan verður svo dýr að almenningur getur ekki notað hana, hvernig fer fyrir slíku þjóðfélagi?
Markmiðið er að afnema frelsi almennings til ferða og ferðalaga, aðeins þeir ríku mun geta það https://frettin.is/2022/09/20/mun-farthegaflug-bratt-heyra-sogunni-til/