„Guðs genið“ er skapari efnis

frettinHallur Hallsson, Heimspeki, Trúmál2 Comments

Hallur Hallsson skrifar:

Árið 1964 setti Skotinn Peter Higgs [1929-] fram kenningu um bóseindina; ljóseindina sem skapar massa, efnið í líkama okkar. Kenning Higgs var staðfest í stóra sterkeindahraðalnum í Cern í Sviss árið 2012. Higgs-genið er oftast kallað Guðs genið; God‘s gene. Ljóseindin er með ofurhleðslu upp á 136 milljarða volta spennu, skapandi efnis = massa. Við samruna sæðis og eggs kvikna ljós og líf; líf í ljósi. Undursamleg sköpun utan og ofan við allt sem við skiljum. Það er ómöguleiki að manneskjan sé sálarlaus tilviljun úr myrkrinu. Frakkinn Alain Aspect [1947-] staðfesti tímaleysi með því að skjóta ljóseindum í sitt hvora áttina í gamla hraðalnum í Cern. Það var árið 1982. Ljóseindirnar rákust saman og breyttu um stefnu nákvæmlega á sama tíma, sem sagt án tímamunar þó ekki væri nema brotabrot úr sekúndu. “Hinar heilögu kýr efnishyggju eru ekki lengur heilagar kýr, heldur gamall misskilningur,“ skrifaði Gunnar Dal árið 1996. “Guð er skapari efnis, tíma og rúms,“ bætti hann við en fékk ekki að upplifa síðari tíðindin frá Cern. Ó, hve vinur minn hefði glaðst. Gunnar var óþreytandi að segja frá hinni Miklu Endurvakningu 21. aldar. Fyrir 28 árum varð þýðing hans á Lögmálunum Sjö um Velgegni metsölubók ársins. Vísindin hafa sannað að efnið kemur úr ljósinu utan tíma og rúms en auðvitað fer tímalaust ljós Guðs í taugar guðlausra.

Alheimsvitundin er kærleikur Drottins

Heilagur andi er alheimsvitund kærleika Guðs sem er sterkasta afl alheimsins skapara himins og jarðar. Allar götur frá krossfestingu Jesú Krists hafa kristnir veitt viðtöku Heilögum anda. Kristinn siður skapaði vestræna siðmenningu frelsis og jafnréttis. Hver og einn hefur val. Jóhannes skírari skírði Jesú Krist í Jórdaná. Með skírn varðaði Jesú leiðina til alheimsvitundar Drottins. Skírnin markaði upphaf trúboðs Jesú. Valið er að lifa í ljósi. Engar breyskar stofnanir milliliðir. Maðurinn er á jörðu til þess að víkka vitund sína; lifa lífi í ljósi. Eins einfalt og gerist.

Barátta góðs og ills

En trúarbrögð heims skýra frá átökum góðs og ills, tveimur meginöflum á jörðu. Jesús hafnaði Satan sem bauð honum öll gæði veraldar. “Baráttan er ekki við menn af holdi og blóði heldur anda illskunnar,“ sagði Páll postuli sem fyrstur skildi í hörgul líf og starf Krists. Jesús Kristur rak út illa anda úr fólki. Barátta góðs og ills er  grundvallarskilningur á eðli lífsins. Illska tortýmir, brýtur og lýgur. Af hverju er ráðgáta en engu að síður lögmál. Getur verið að illska sé náttúrulögmál alveg eins og þyngdarlögmál Isaac Newton [1643-1727]. Ætti kærleikur að vera meðal náttúrulögmála? Kannski ekki, kærleikur er utan tíma og rúms. “Ég er ekki af þessum heimi,“ sagði Jesú. Ætti þá að gilda sama um illsku? Satan þekkir lögmál alheimsins og rekur sauði í réttir.

2 Comments on “„Guðs genið“ er skapari efnis”

  1. Hvað annað en yfirnáttúrulegur Skapari getur útskýrt allt Hugvitið, Skynsemina, Verkvitið og Mikilfengleikann sem birtist í Sköpunarverkinu? Hvað annað en kærleiksríkur Guð getur útskýrt hvernig andlegur Kærleikur getur framkallast í mannshuganum sem samanstendur af frumefnum?

  2. Higgs boson / Higgs particle / God particle. Það er að tala um EIND. ,,Gen“ koma ekki við sögu.

Skildu eftir skilaboð