Á tali hjá Hemma Gunn og Vikulokin með Gísla Marteini

frettinHallur Hallsson, Innlent1 Comment

Ég var á Sjónvarpinu þegar Hermann Gunnarsson [1946-2013] var með skemmtiþáttinn Á tali hjá Hemma Gunn, líklega vinsælasta þátt í sögu Sjónvarpsins. Vinsemd, virðing og gleði einkenndu Hemma heitinn, einlæg og skemmtileg viðtöl og kannski alveg sérstaklega við börn. Þessi árin er Gísli Marteinn Baldursson með þátt Vikulokin með Gísla Marteini þar sem lista-elítan fabúlerar um ekki neitt og Gísli hneggjar.

Hemmi Gunn lést árið 2013.

Krossinn og Golgata
Ég hef reynt að greina Gísla Martein. Hroki kemur í huga þegar Gísli Marteinn reigir sig eins og hani. Þegar ég horfi milli eyrna Gísla þá er enginn heima, ekkert, blanco, púff. Enginn guðlegur neisti, engin samkennd, engin samúð bara guðleysi úr myrkrinu þar sem ekkert er. Frakkar líkja Macron forseta við reittan hana á hálfhjóli; þræðandi hommabari Parísar á l'Hemicycle og uppnefna Micron. Það er svo margt hulið. Gísli Marteinn er á þríhjóli sem 6ti bekkingur í afneitun. Þetta er auðvitað stórmerkilegt. Sú var tíð að Gísli var forsmáður íhaldstittur, hataður af vinstra villtu fólki. Nú hraðar söfnuðurinn uppvaskinu til þess að missa ekki af pólitískri prédikun preláta síns. Í aðdraganda Dymbilviku var gert grín að krossinum trúartákni kristinna manna án virðingar og samkenndar með fórnardauða Jesú Krists. Fólkið í landinu gert að kjánum, Halldór Benjamín dúfa rogaðist með krossinn. Við óbreytt alþýðufólk göngum golgötu lífs okkar alla daga. RÚV er sem steríll kassi mokandi myrkri og fordómum í garð þess sem íslenskt er og kristið telst.

Ivermectin forsmáð
Fyrir tveimur árum rúmum hneggjaði Gísli Marteinn rosalega að Ivermectin sem hann kvað fyrir hross að skipan Landlæknis og Lyfjastofnunar í þjónustu við lyfjarisa; Big-Pharma og illkynja sprautur þeirra. Þúsundir kvenna í fb-hóp Rebekku voru forsmáðar, svívirtar, eyðilegging tíðahrings þeirra þögguð. Umframdauði Íslendinga hinn hæsti í Evrópu, fólk að deyja af völdum mRNA. Þó ekki sé nema fyrir þetta illvirki endar guttinn á þríhjólinu í ruslakistu sögunnar. Við vitum nú að nóbelslyfið hefur undravirkni gegn covid. Ameríska lyfjaeftirlitið hefur sett það á markað og dregið til baka lygavaðal sinn. RÚV þegir og þaggar.

Hatur og fordómar
Hryðjuverkið í Moskvu þar sem 137 eru látnir og 180 slasaðir hefur skekið veröldina en ekki lygaveituna RÚV sem stöðugt eys hatri og fordómum. Bogi Ágústsson og Ólöf Ragnarsdóttir fabúleruðu að Pútin hefði framið hryðjuverkið í Moskvu til þess að fá “…samúð alþjóðasamfélagsins til þess að afla sér vinsælda heima fyrir...”. Þetta er ekki hægt að skálda, þetta er sturlun huga.
Ég var fréttamaður Sjónvarps og breytti fréttum með vini mínum Ingva Hrafni. Þar er enn margt flott og gott fólk en rétttrúnaðarklíka með lögreglustjóra efst á fjóshaugnum hefur tekið Sjónvarpið í gíslingu og breytt í guðlaust sterílt síljúgandi RÚV. Loka ber fréttadeildum og fá til starfa í þáttagerð fólk eins og Hemma Gunn sem ber virðingu fyrir fólkinu í landinu.

One Comment on “Á tali hjá Hemma Gunn og Vikulokin með Gísla Marteini”

  1. Því miður eru það margir, m.a. fréttamenn, sem fagna falsljósinu. Það er ástæða fyrir því að það „verður grátur og gnístran tanna“ fyrir guðleysingjana í myrkrinu. En fólk hefur Frjálsan Vilja til að velja sinn áfangastað. Guð hefur opinberað mátt sinn í sköpunarverkinu og með boðun fagnaðarerindisins. „Því eru mennirnir án afsökunar“.

Skildu eftir skilaboð