Hin ómálefnalegu

frettinInnlent, Jón Magnússon, Pistlar2 Comments

Jón Magnússon skrifar:

Forsætisráðherra segir helstu markmið ríkisstjórnarinnar, að draga úr verðbólgu, gera átak til að auka framleiðslu vistvænnar orku og setja ákveðnari reglur um hælisleitendur.

Ekki hefur orðið vart við málefnaleg andmæli gegn þessum meginmálum sem ríkisstjórnins ætlar að beita sér fyrir. Ekki hafa heldur komið fram málefnaleg andmæli við þeim aðferðum sem ríkisstjórnin ætlar að beita til að ná þessum markmiðum. 

Raunar er það með ólíkindum, að stjórnarandstaðan skuli ekki hafa neitt við aðferðarfræði ríkisstjórnarinnar að athuga, þó full ástæða sé til í mörgum greinum, en telur skemmtilegra að efna til samkvæmisleiks um sérstök mótmæli við forsætisráðherra með undirskriftarsöfnun á netinu. 

Undirskriftarsöfnunin á island.is er með því aumkunarverðasta sem sést hefur í pólitík. Af sjálfu leiðir í lýðræðislandi að fólk er misánægt með einstaklinga í stjórnmálum og fjarri fer því að pólitískir andstæðingar á hverjum tíma telji forsætisráðherra andstæðinganna vera sinn forsætisráðherra þó hann sé það nú samt. Ég tel t.d. upp á að meirihluti kjósenda greiði öðru forsetaefni atkvæði sitt í komandi kosningum en þeim sem kosinn verður. Eigum við þá að fara í barnaleik á island.is um að þetta sé ekki okkar forseti?

Það er dapurlegt að horfa upp á það hvað vinstri sinnaða stjórnarandstaðan er heillum horfin og málefnasnauð, að standa í persónulegu skítkasti gagnvart forsætisráðhera í stað þess að finna málefnalegan grundvöll fyrir gagnrýni á ríkisstjórn.

En margt er sér til gamans gert og svo leika börn sem fyrir þeim er haft.

2 Comments on “Hin ómálefnalegu”

  1. Þetta er og hefur verið allt svo ofboðslega glæsilegt, að það má bara ALLS EKKI tala um öll þessi mál, eins og t.d. þá vafningsmálið, Glitnisbankamálið, Íbúðarlánasjóðsmálið, Íslamsbankamálið, leyndar- og Lindarhvolfsmálið, nú g svo 450 milljarðar spillingarmálin beint til útvalina fyrirtækja. Nú og þið þessir líka útvöldu (eða „hæfir fjárfestar“) í Sjálfsæðisflokknum munið eftir því, að láta okkur (alla þjóðina) vita eða svo getum keypt og selt aftur hlut í Íslandsbanka til græða svona líka, eða eins og þið komust upp með að gera.Munið að það er ekki bara öll vinstri sinnaða stjórnarandstaðan sem er ósátt og óánægð, heldur einnig fleiri og í öðrum flokkum.

  2. Á hvaða trippi er þessi Jón Magnússon að tala frá .. Við eigum bara að kyngja að hans flokkur er rosalega flottur og gerir allt svakalega „vel gert“. Æj vandamálið er lýðræðisleg skoðun á Islandia.is að hans herra er skítur.. engin þolir hann og engin treystir þessum manni. Er það ekki augljóst Jón að þú ert að verja mann sem hefur marg itrekar unnið á móti hagsmunum íslensku þjóð ítrekar í embætti! Vil bæta við að mín tilfinning er að allir flokkar á alþingi nema flokkur fólksins er háður NGO.

Skildu eftir skilaboð