Á tímabilinu 7. október – 31. desember 2023 greindi afbrotavarnaráð Svíþjóðar, Brå, samtals 110 hatursglæpi gegn gyðingum. Er það um fimm sinnum meira en á sama tímabili árið áður.
Eftir árásina á Ísrael 7. október 2023 og þá ofbeldisfullu þróun sem fylgdi í kjölfarið, hafa borist fregnir bæði í Svíþjóð og á alþjóðavettvangi um aukna ógnir gegn gyðingum og vaxandi gyðingahatur.
Brå hefur farið yfir allar skýrslur sem lögreglan merkir sem hatursglæpi í lok árs 2023 og borið þær saman við sama tímabil árið 2022.
Rannsóknin sýnir að alls var tilkynnt um 110 hatursafbrot gegn gyðingum á tímabilinu 7. október – 31. desember 2023 sem var nærri fimm sinnum meira miðað við sama tímabil árið áður. Um það bil 20% afbrota haustið 2023 tengjast Hamas-árásinni 7. október eða stríðinu á Gaza í kjölfarið. Jon Lundgren, rannsóknarmaður hjá Brå, segir í erindi:
„Meðal annars er um að ræða veggspjöld og yfirlýsingar gegn gyðingum í tengslum við mótmæli en einnig hótanir og brot gegn einstaklingum með gyðingabakgrunn sem kennt er um aðgerðir Ísraela á Gaza.“
Meirihluti allra ákæra haustið 2023 flokkast undir æsingu gegn þjóðfélagshópum 39% og skemmdir 28% en voru á sama tímabili árið 2022 38% og 24%.
2 Comments on “Mikil aukning hatursbrota gegn gyðingum”
Sjálfskaparvíti en það má náttúrulega ekki ræða það því þá er maður um leið orðinn að gyðingahatara…
Ef einhver vill ekki hafa kött á heimilinu, er það ekki vegna þess að hann hati ketti. Honum finnst bara að kettir eigi ekkert erndi í hans húsakynnum.
Íslendingar mega alveg hafa álit á því hverjir dvelja á landinu, án þess að eitthvað hatur sé með í spilinu !