Kolbeinn gefur út yfirlýsingu

frettinInnlendar1 Comment

Knattspyrnumaðurinn Kolbeinn Sigþórsson hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna umfjöllunar um hann síðustu daga. Í yfirlýsingunni kannast Kolbeinn við að hafa hitt Þórhildi Gyðu Arnarsdóttur og vinkonu hennar en að hann hafi ekki kannast við að hafa áreitt þær eða beitt þær ofbeldi og neitaði hann því sök.

Kolbeinn segir þó að hegðun sín hafi hins vegar ekki verið til fyrirmyndar og segist hann hafa beðist afsökunar á henni. „Ég iðraðist og tók á því ábyrgð og var tilbúinn að leita sátta. Þær höfðu uppi kröfu um afsökunarbeiðni og greiðslu sem ég féllst á. „Auk þess greiddi ég 3 milljónir króna til samtakanna Stígamóta og studdi þannig mikilvæga baráttu samtakanna gegn kynferðisofbeldi,“segir Kolbeinn.

 

„Yfirlýsing Kolbeins Sigþórssonar   

Á undanförnum árum hef ég átt í erfiðleikum,  verið andlega á slæmum stað,  mikið meiddur og framtíð ferils míns sem knattspyrnumanns í mikilli hættu. Ég kom mér í aðstæður þar sem ég hegðaði mér með óviðeigandi hætti. Þórhildur Gyða Arnarsdóttir hefur stigið fram og lýst sinni upplifun af atviki á skemmtistaðnum B5 haustið 2017. Vorið 2018 hitti ég Þórhildi Gyðu og vinkonu hennar og hlustaði á þeirra upplifun.   

Ég kannaðist ekki við að hafa áreitt þær eða beitt ofbeldi og neitaði sök. Hegðun mín var hins vegar ekki til fyrirmyndar og baðst ég afsökunar á henni. Ég iðraðist og tók á því ábyrgð og var tilbúinn að leita sátta. Þær höfðu uppi kröfu um afsökunarbeiðni og greiðslu sem ég féllst á. Auk þess greiddi ég 3 milljónir króna til samtakanna Stígamóta og studdi þannig mikilvæga baráttu samtakanna gegn kynferðisofbeldi.

Með þessu var málinu lokið af okkar hálfu. KSÍ var upplýst um framvindu sáttaviðræðna og lyktir þeirra en afneitun KSÍ leiddi til þess að Þórhildi Gyðu fannst hún rænd sinni sátt. Ég hef skilning á því.   

Ég harma mína hegðun á þessum tíma og tek harða afstöðu gegn hvers kyns ofbeldi. Ég er enn markvisst að vinna í mínum málum. 

 

Þá hefur frettin.is samkvæmt áreiðanlegum upplýsingum gögn undir höndum sem staðfesta að Kolbeinn greiddi Þórhildi Gyðu samtals 6 milljónir króna í sáttarþóknum sem Þórhildur fór fram á árið 2017.

Sjá má skjáskot hér að neðan og ítarlegri upplýsingar:

 

 

Skildu eftir skilaboð