Þetta gerist þegar maður hættir að trúa fréttunum

EskiGeir Ágústsson, Lífið1 Comment

Fréttir geta verið góðar en hvað gerist þegar maður stundar ekki lengur trúgirni á þær? Verður einhver breyting?

„Mann­eskja sem trúði á fréttatímana, en gerir það einhverra hluta ekki lengur, upplifir mikinn létti og finnur allskonar jákvæðar breytingar á bæði líkama og sál, og finnur enga löngun til að snúa aftur í fyrra ástand“ seg­ir ónafngreindur einstaklingur sem velur að láta nafns síns ekki getið af ótta við að vera kallaður samsæriskenningasmiður, óvísindalegur og álhattur.

Virtir vísindamenn í allskonar fræðum hafa bent á að það geti verið slæmt fyrir sálina að upplifa harðan vetur en trúa um leið á hamfarahlýnun af mannavöldum. Sjómenn sem eru allt í einu að rekast á hafís, en hafa kolefnisjafnað líf sitt, hafa upplifað mikla andlega áreynslu við að reyna fá hvoru tveggja til að hanga saman. Þeir sem hafa hins vegar hafnað trúarritningum loftslagskirkjunnar finna engan mun á líðan sinni. Þegar í land er komið hafa þeir jafnvel ákveðið að stækka við sig bílinn og haldið áfram að ferðast með fjölskyldum sínum til fjarlægra landa, alveg samviskulaust.

Verst staddi hópurinn er samt börnin. Þau eru látin dvelja í stanslausum heilaþvætti frá morgni til lok skóladags og upplifa kvíða og ótta. Stungið hefur verið upp á því að kennarar einbeiti sér að því að mennta börnin frekar en heilaþvo þau en litlar undirtektir eru fyrir slíku.

En óttist ekki! Viðsnúningurinn er hafinn. Þeir sem borga bæði græna skatta og fyrir aflátsbréf til að kolefnisjafna sig gera það á meðan þeir hafa efni á því, og gott fyrir þá. Aðrir ættu að hugleiða svolitla andspyrnu. Hér er hæðni við hæfi.

Trúir þú því að beljuprump, bílferðir þínar og ferðalög séu að breyta loftslagi Jarðar? Jæja þá.

One Comment on “Þetta gerist þegar maður hættir að trúa fréttunum”

Skildu eftir skilaboð