Brynjar Níelsson hefur verið ráðinn aðstoðarmaður Jóns Gunnarssonar innanríkisráðherra. Hefur Jón þar með ráðið sér tvo aðstoðarmenn á tveimur dögum, en í gær var greint frá því að Hreinn Loftsson yrði einnig aðstoðarmaður Jóns en hann var einnig aðstoðarmaður Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur fv. dómsmálaráðherra.
Brynjar var þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík frá árinu 2013 og frá árinu 2017 var hann 2. varaforseti þingsins.
Brynjar var sjálfstætt starfandi lögmaður frá 1991 þar til hann tók sæti á þingi og var eftirsóttur á því sviði, en árin 2010-2012 var hann jafnframt formaður Lögmannafélags Íslands og hefur því víðtæka þekkingu á sviði lögfræðinnar.
Frettin.is óskar Brynjari innilega til hamingju með nýja starfið, en fyrr í dag skrifaði hann færslu á facebook og tilkynnti að hann yrði að hverfa tímabundið frá því ekki væri gert ráð fyrir ábyrgðarlausu glensi á samfélagsmiðlum í nýja starfinu.
Færslu Brynjars má sjá hér að neðan.