Börn og lyfjatilraunir – trúverðugleikinn brostinn

frettinPistlar1 Comment

Þorsteinn Siglaugsson hagfræðingur skrifar. Greinin birtist á visi.

Undanfarnar vikur og mánuði hefur harður áróður verið rekinn fyrir bólusetningu ungra barna við Covid-19. Í síðustu viku var gefið verulega í. Fyrstur reið á vaðið Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir með ógnvekjandi tölur um þá hættu sem börnum væri búin af Covid-19 og fjarstæðukenndar fullyrðingar um hættu á langtímaafleiðingum. Í kjölfarið birtust viðtöl við Valtý Thors barnalækni, Ásgeir Haraldsson prófessor og fleiri, sem bergmáluðu fullyrðingar Þórólfs með ýmsum tilbrigðum.

Trúverðugleikinn brostinn

Fljótlega kom á daginn að Þórólfur hafði tvöfaldað allar tölur í skýrslunni um innlagnir, gjörgæslumeðferð og dauðsföll barna, auk þess sem hann tók ekkert tillit til þess einungis lítill hluti raunverulegra smita greinist yfirleitt, t.d. um fjórðungur í Bandaríkjunum og á heimsvísu allt að einn tuttugasti.[i] Sé þetta tekið með í reikninginn er nær lagi að ætla að 10-20 börn hérlendis myndu leggjast á sjúkrahús ef þau smituðust öll, ekki allt að 200 líkt og Þórólfur hélt fram í upphafi. Ekkert barn myndi látast. Þórólfur hefur síðan viðurkennt ýkjurnar um þetta efni að hluta. En aðrar hefur hann ekki leiðrétt, til dæmis að 3-5 af hverjum tíu sem smitast af Covid-19 glími við alvarlegar langtímaafleiðingar. Það væru að lágmarki sex þúsund manns og vafalaust hefði nú einhver tekið eftir því!

Áhætta og ávinningur

Laugardaginn 18. desember, í kjölfar fjölmennra mótmæla gegn bólusetningu barna, brást svo Magnús Karl Magnússon prófessor við gagnrýni á lyfjatilraunir á heilbrigðum börnum. „Það er svo sannar­lega ekki slæmt að gera til­raunir á börnum ... nú erum við svo heppin að þessar tilraunir liggja fyrir.“ skrifaði Magnús í pistli sem að stórum hluta var birtur á Vísi[ii]. Þar vísar hann til tilraunar Pfizer með bólusetningu ungra barna, og virtist draga þá ályktun að niðurstöður hennar staðfesti að bóluefnin séu þeim hættulaus. „Hættan af bólu­efnunum er mun minni en sú hætta sem fylgir því að barnið fái ekki bólu­efni og eigi á hættu að fá sýkingu með fylgi­kvillum“ segir hann orðrétt.

En í rannsókninni er skýrt tekið fram að í henni er ekki lagt mat á hættu á sjaldgæfum eða langvinnum aukaverkunum. Heildarrannsókn Pfizer á áhrifum bóluefnisins á börn og ungt fólk lýkur raunar ekki fyrr en árið 2026.[iii] Bóluefnin fyrir ung börn eru seld undir svonefndu neyðarleyfi (e: emergency authorization) og teljast því ekki fullprófuð lyf.

Sú ályktun Magnúsar að öryggi efnanna fyrir börn sé staðfest er því röng: Við fyrirhugaða bólusetningu barna verður notast við lyf á neyðarleyfi, aukaverkanir þeirra fyrir aldurshópinn eru órannsakaðar, en fyrir liggur að þau hafa leitt hafa til 75-földunar tilkynntra aukaverkana hérlendis í öðrum aldurshópum[iv]. Það er alvarlegt mál í ljósi þess hversu gríðarlega lítil hætta börnum er búin af sjúkdómnum. Samkvæmt nýrri þýskri rannsókn sem nær fram í maí 2021 hefur ekkert heilbrigt 5-11 ára barn látist þar í landi vegna Covid-19 frá upphafi faraldursins, svo dæmi sé nefnt.[v]

Við getum fylgt fordæmi Finna

Franska læknaakademían hefur nýverið mælt gegn bólusetningu heilbrigðra 5-11 ára barna.[vi] Finnsk heilbrigðisyfirvöld hafa ákveðið að heilbrigð 5-11 ára börn verði almennt ekki bólusett, en börnum í áhættuhópi og þeim sem deila heimili með fólki í áhættuhópi verði boðin bólusetning.[vii] Ég hvet heilbrigðisráðherra til að skoða vel röksemdir finnskra yfirvalda fyrir þessari ákvörðun, sem mér virðist lýsa skynsemi, varkárni og virðingu fyrir hagsmunum barna.

Höfundur er hagfræðingur.


[i] https://www.ecdc.europa.eu/en/publications-data/interim-public-health-considerations-covid-19-vaccination-children-aged-5-11, https://www.cdc.gov/coronavirus/2019-ncov/cases-updates/burden.html, https://onlinelibrary.wiley.com/doi/epdf/10.1111/eci.13554

[ii] https://www.visir.is/g/20212198020d/sannar-lega-ekki-slaemt-ad-gera-til-raunir-a-bornum

[iii] https://clinicaltrials.gov/ct2/show/NCT04816643

[iv] Samkvæmt svari Lyfjastofnunar við fyrirspurn þann 1.11.2021 voru 9 tilfelli aukaverkana vegna flensubólusetninga tilkynnt 2019. Um 70.000 voru bólusettir við flensu. Tilkynningarnar eru nálægt 5.900 það sem af er þessu ári, af tæplega 290.000 bólusetningum. https://www.lyfjastofnun.is/covid-19/aukaverkanatilkynningar-vegna-covid-19/, https://www.covid.is/tolulegar-upplysingar-boluefni

[v] https://www.medrxiv.org/content/10.1101/2021.11.30.21267048v1.full.pdf

[vi] https://www.academie-medecine.fr/should-children-be-vaccinated-against-covid-19/?lang=en

[vii] https://news.yahoo.com/finland-limit-childrens-covid-19-143038445.html

One Comment on “Börn og lyfjatilraunir – trúverðugleikinn brostinn”

  1. Þegar Fálkaorðu Þórólfur er farinn að tvöfalda allar tölur í skýrslu um gjörgæslumeðferð innlagnir og dauðsföll barna og ljúga til að geta sprautað lítil saklaus börn, þá er komin tími til að hann skili Fálkaorðunni og og heiðarlegur sóttvarnalæknir sem ekki er tengdur lyfjarisunum komi í staðinn.
    Bóluefnin fyrir ung börn eru seld undir svonefndu neyðarleyfi (e: emergency authorization) og teljast því ekki fullprófuð lyf.
    Heildarrannsókn Pfizer á áhrifum bóluefnisins á börn og ungt fólk lýkur raunar ekki fyrr en árið 2026

Skildu eftir skilaboð