Forsetafrú Úkraínu eyddi sex milljónum á einni klukkustund í fínu búðunum í París

frettinErlent, Úkraínustríðið1 Comment

Útvarp saga greinir frá því í dag að eiginkona Zelensky Úkraínuforseta hafi nýlega verið í París til að safna meiri peningum og stuðningi við Úkraínu „til að komast í gegnum veturinn.“ Hún kíkti einnig inn í nokkrar fínar verslanir til að ná í eitthvað fyrir sig og tókst að eyða því sem nemur 6 milljónum íslenskra króna á 60 mínútum.

Úkraína er í hörmulegu stríði við Rússland um þessar mundir sem kostar mannslíf og eyðileggur landið. Úkraína var í miðju stríðsins á milli Þýskalands og Rússlands í seinni heimsstyrjöldinni, fór svo undir stjórn Sovétríkjanna þar til snemma á tíunda áratugnum þegar „járntjaldið“ féll. Landið hefur verið í brennidepli margra stjórnmálamanna og vegna ásakana um spillingu í mörg ár. George Soros, Hillary Clinton, Podestas, Nancy Pelosi og Bidens hafa öll haft tengsl við Úkraínu í mörg ár. Sonur Joe Biden hagnaðist um milljónir eftir að hafa verið skipaður í stjórn olíu- og gasfyrirtækisins Burisma, þrátt fyrir að hafa enga kunnáttu á því sviði.

Fyrr á þessu ári réðust Rússar inn í Úkraínu og alþjóðasamfélagið hefur sent milljarða til Úkraínu til að stöðva viðleitni Rússa. Landið segist þurfa meira fé og vörur til að komast í gegnum veturinn. Í París var greint frá því í vikunni, að Úkraína hafi fengið 1,1 milljarð dala til viðbótar í neyðaraðstoð til að komast gegnum vetrarmánuðina. Vestrænir bandamenn Úkraínu hétu einum milljarði evra (1,1 milljarði Bandaríkjadala) til viðbótar í neyðaraðstoð í vetur, vegna beiðni Volodymyr Zelensky forseta um fjármagn til að standast árás Rússlands á orkukerfi landsins.

70 lönd og alþjóðastofnanir á fundi í París til að hjálpa Úkraínu að „komast í gegnum veturinn“

Um það bil 70 lönd og alþjóðastofnanir komu saman á fundi í París, sem fór fram til að gera Úkraínumönnum kleift að „komast í gegnum veturinn“ að sögn Emmanual Macron. Zelensky sagði á myndbandsskilaboðum, að Úkraína þyrfti aðstoð upp á 800 milljónir evra til skamms tíma fyrir illa farinn orkugeirann.

„Auðvitað er þetta mjög há fjárhæð, en kostnaðurinn er minni en kostnaðurinn við hugsanlegt rafmagnsleysi.“

Þetta var enn einn stóri sigurinn fyrir Úkraínu. Aðstoð upp á milljarða dollara hefur runnið til Úkraínumanna síðan Rússar réðust inn í landið á vakt Biden foresta. Forsetafrú Úkraínu var einnig með í bónarferð Úkraínumanna til Parísar. Fréttir hafa borist af því, að hún hafi tekið sér frí einn daginn til að fara í stutta verslunarferð fyrir sjálfa sig á meðan hún var í París. The Conservative Treehouse segir, að Olena Zelenský, eiginkona forseta Úkraínu, hafi farið til Parísar í þriggja daga heimsókn 12.-14. desember. Le Monde greindi frá:

„Meðlimir úkraínsku ríkisstjórnarinnar munu einnig koma, þar á meðal Denys Shmyhal, forsætisráðherra Úkraínu og nokkrir ráðherrar sem sjá um enduruppbyggingu, þar á meðal Yulia Svyrydenko efnahagsráðherra, Oleksandr Kubrakov innanríkisráðherra og þýski Galushchenko orkumálaráðherra.“

Eyddi 40 þúsund evrum á einni klukkustund

Mikil umræða er á samfélagsmiðlum eftir að „áreiðanlegur afgreiðslumaður í verslun“ sem starfar á hinu glæsilega Avenue Montaigne sagði frá því, að forsetafrúin hafi farið í jólainnkaupaferð og eytt 40.000 evrum á einni klukkustund sem eru um 6 milljónir íslenskra króna. Áður tók franska forsetafrúin Bridget Macron á móti eiginkonu Zelensky forseta.

Ef fréttin er rétt, kemur fjársóun Olenu í hégóma og prjál á slæmum tíma, þar sem Úkraínuforseti, fór í bónsferð til ESB til að fá frekari fjárhagslegan stuðning við hið stríðshrjáða land sitt.

Auk þess er Biden-stjórnin að reyna að þrýsta á þingið til að samþykkja til viðbótar 38 milljarða dollara útgjaldapakka fyrir Úkraínu sem kemur heildareyðslu Bandaríkjanna vel yfir 100 milljarða dollara. Eyðsla forsetafrúarinnar er ekki gott fordæmi og stingur í augun á fólki í Evrópu, sem er að velta því fyrir sér, hvernig það á að komast í gegnum veturinn með öllu því okri á mat og rafmagni sem látið er viðgangast.

Þess má geta að Þórdís Kolbrún utanríkisráðherra, sendi rúmar 400 milljónir til viðbótar í vikunni til Úkraínu ofan á þá fjárhæð sem nú þegar hefur verið send frá Íslandi. Þá hefur utanríkisráðuneytið einnig staðið að vopnasendinum til Úkraínu, en eins og Fréttin greindi frá í október, og vopn sem Vesturlönd hafa sent til Úkraínu ganga kaupum og sölum á svarta markaðnum í Evrópu.

One Comment on “Forsetafrú Úkraínu eyddi sex milljónum á einni klukkustund í fínu búðunum í París”

Skildu eftir skilaboð