Fjöldi ferðamanna er enn fastur í flugstöðinni í Keflavík og kemst hvergi. Margir hafa látið í sér heyra á samfélagsmiðlum og birt myndir og myndbönd af ástandinu. Ljóst er að fólk er ekki ánægt.
Reykjanesbrautin er enn lokuð vegna veðurs og staðan verður tekin á hádegi. Mikil truflun er á flugferðum til og frá Íslandi.
Meðal strandaglópa er eða var breski leikarinn Damian Lewis.
Twitter notandinn Caroline Rose birti myndir og "selfie" af sér og leikaranum á Twitter 18. desember og sagði:
„Myndir frá Íslandi eftir einn og hálfan dag af @Icelandair töfum á flugi og afbókunum sem hafa strandað hundruðum í Keflavík. Fólk svaf á farangursbeltum, í rúllustigum og á farangursvögnum.
BTW Damian Lewis var líka fastur hérna og það var æðislegt.“
Færslan er skrifuð í fyrradag og óljóst hvort ferðamennirnir séu enn í Leifsstöð eða hvort þeir hafi komist leiðar sinnar.