Ungabarnið Alex fæddist þann 3. janúar 2022 í Walla Halla í Washington í Bandaríkjunum. Það dó aðeins 45 daga gamalt þann 17. febrúar 2022 eftir að hafa fengið C-19 mRNA „bólusett“ blóð þrátt fyrir andstöðu foreldranna.
Alex hafði fæðst með hjartagalla og þurfti að fara í aðgerð sem börn í 95% tilfella ná fullri heilsu á eftir. Aðgerðin var framkvæmd 24. janúar og Alex litli lifði aðgerðina af og var farinn að anda af sjálfsdáðum þegar hann dó vegna blóðtappa sem var svo langur að hann náði frá vinstra hné til hjartans.
Alex dó aðeins 24 dögum eftir að starfsfólk Providence Sacred Heart barnaspítalans í Spokane, í Washington, hafði gefið ungabarninu blóð frá C-19 „bólusettum“ blóðgjöfum. Það gerðu þeir þrátt fyrir andstöðu foreldranna eins og áður sagði.
Blóðtappar eru þekkt vandamál hjá mörgu C-19 „bólusettu“ fólki og hafa útfararstjórar lýst óvenjulegum gúmmíkenndum blóðtöppum í látnu bólusettu fólki, eins og Fréttin hefur sagt frá. Þá var fjallað um þetta vandamál í myndinni Died Suddenly sem frumsýnd var í nóvember sl.
Á myndinni hér að neðan má sjá Alex vinstra megin anda sjálfan og án stuðnings eftir aðgerðina, en hægra megin er búið að vefja barnið í teppi rétt eftir andlátið.
Á mínútu 18:00 í þessu myndbandi má hlusta á viðtal við foreldra Alex:
Heimild: EvieMagazine