Eru þetta góð meðmæli með „bóluefnunum“?

frettinCovid bóluefni, Kristín Inga Þormar, Pistlar2 Comments

Kristín Þormar skrifar:

Alma Möller landlæknir, sem hefur ekki sést lengi er núna skriðin upp úr holunni sinni með nýjustu tölurnar um andlát sem hún segir vera vegna veirunnar ógurlegu.

Hvernig getur hún sannað þetta, voru þessir 400 einstaklingar krufnir?

Fyrst voru tölurnar c.a. 200, en nú allt í einu 400. Gleymum því ekki að hún sat lengi á 2.000 tilkynningum um aukaverkanir árið 2021!

Gleymum því ekki heldur að hún forðaði aldraðri tengdamóður sinni frá sprautunum í ársbyrjun 2021, og þegar það spurðist út voru starfsmenn hjúkrunarheimilisins teknir í þriðju gráðu yfirheyrslur og að lokum var saklausum hjúkrunarfræðingi sagt upp störfum þar.

Hvað finnst ykkur, eru þessar niðurstöður hennar góð meðmæli með "bóluefnunum" sem stærstur hluti þjóðarinnar hefur verið sprautaður með - sumir nokkrum sinnum?


Áttu "bóluefnin" (sem eru ekki bóluefni eins og við höfum þekkt þau hingað til) ekki að bjarga okkur út úr "heimsfaraldrinum"?

Vonandi fer fólk að sjá í gegnum þennan rakalausa lygaþvætting, eitursprauturnar skaða og drepa, en bjarga fáum eða engum lífum, eins og sjá má örfáar sannanir um hér:

Afsakið, en ég get bara ekki setið á mér þegar ég sé svona rakalausar lygar, og ég er búin að skrifa ótal blogg undanfarin tvö ár sem sanna mál mitt.

Farið að hugsa út í það hvers vegna nákvæmlega sama handriti og hræðsluáróðri var beitt í öllum löndunum sem gengu hvað harðast fram í að blekkja fólk í þessar sprautur.

Sömu löndum og ætla að samþykkja alræðisvald glæpastofnunarinnar WHO yfir heilbrigðismálum heimsins.

2 Comments on “Eru þetta góð meðmæli með „bóluefnunum“?”

  1. Kristín er mergjuð og búin að vera hetja á veirutímum. Takk fyrir endurbirtinguna.

Skildu eftir skilaboð