Ríkislögreglustjóri og Samtökin ´78 hafa gert með sér samstarfssamning um áframhaldandi hinsegin fræðslu, ráðgjöf við rannsóknir og þróun á verklagi og nýju fræðsluefni fyrir lögreglu.
Embætti ríkislögreglustjóra hefur átt í góðu samstarfi við Samtökin ´78 um fræðslu fyrir lögreglu. Samtökin ´78 hafa verið með fræðslu á námskeiðum fyrir lögreglu um hatursglæpi og fjölmenningu frá 2018 og um hinseginleikann frá 2022 þ.m.t. fyrir varðstjóra og rannsakara. Þessi samstarfssamningur byggir á þeim grunni þar sem hugað er sérstaklega að þróun á fræðsluefni sérsniðnu fyrir umhverfi lögreglu. Samningurinn er víðtækur og snýr líka að ráðgjöf frá Samtökunum ´78 vegna rannsókna á brotum gegn hinsegin fólki og ráðgjöf um mannauðsmál lögreglu.
Ríkislögreglustjóri leggur áherslu á að réttindi og jöfn staða hinsegin starfsfólks séu tryggð innan lögreglunnar. Samhliða því að bæta þjónustu lögreglunnar við hinsegin fólk, þarf að tryggja að starfsumhverfi lögreglunnar sé hinseginvænt. Markmið samningsins eru að bæta þessa þætti innan lögreglunnar með fræðslu og ráðgjöf.
“Fræðslan sem við höfum verið að bjóða upp á hjá Samtökunum hefur tekist mjög vel svo það er frábært að geta formfest þetta samstarf betur. Við höfum haft gott af því gegnum tíðina að setja upp kynjagleraugun. Með þessum nýja samning fáum við verðmæta aðstoð við að setja upp hinsegin gleraugu. Það er spennandi og mikilvæg vinna framundan hjá lögreglunni og Samtökunum 78.” – Sigríður Björk Guðjónsdóttir, ríkislögreglustjóri
Það var þingsályktun um aðgerðaáætlun í málefnum hinsegin fólks 2022-2025 sem ýtti nýjum samstarfssamningi úr vör. Dómsmálaráðuneytið í samvinnu við ríkislögreglustjóra er ábyrgt fyrir fræðslu um málefni hinsegin fólks til lögreglu. Í greinargerð með aðgerðaráætluninni segir að bakslag hafi orðið um allan heim þegar kemur að réttindum hinsegin fólks og þar er trans og intersex fólk í sérstaklega viðkvæmum hópi. Meira hefur borið á hatursorðræðu og hatursglæpum á liðnum árum. Þá verður hinsegin fólk einnig fyrir margvíslegum fordómum og beinni og óbeinni mismunun í samfélaginu.
Mikilvægt er að þekking sé meðal lögreglunnar um málefni hinsegin fólks svo tekið sé án fordóma og mismunar á verkefnum sem koma á borð lögreglunnar.
Með aukinni fræðslu og þekkingu er lögreglan efld til að bera rétt kennsl á mál er varða brot gegn hinsegin fólki, skráning mála í lögreglukerfið LÖKE bætt og hinsegin fólki tryggð nauðsynleg vernd og stuðningur.
One Comment on “Ríkislögreglustjóri setur upp hinsegin gleraugu”
Ef öllum þessum ofsóttu (?) minnihlutahópum tekst að þagga niður í fólki sannleikans, er stutt í að perrarnir sjái farveg skapast. Vont mál, vond framtíð.