Hinar vinsælu barnabækur J.K. Rowling hafa nú mætt andspyrnu frá hópi trans-aktívista sem brenna þær nú í mótmælaskyni við persónulegar skoðanir hennar á því að ungum börnum sé leyft að ráða því sjálf hvaða líkama þau tilheyra eða ekki, og fá lyfja- og skurðlækna til liðs með sér til að koma þeim skoðunum á með líkamlegum breytingum á líkömum þeirra. Ekki fylgir sögunni hvort sömu börn eigi að fá leyfi til að drekka áfengi, kjósa og taka bankalán.
J.K. Rowlings svaraði fyrir sig á Twitter með kaldhæðnislegu skilaboði og virðist taka því rólega að fyrirbæri og bókabrennur, sem má tengja við marga myrka kafla í sögu mannkyns á seinni tímum, séu framkvæmdar og það á hennar bókum, en fordæmir vitaskuld athæfið. Margir á Twitter benda á að bókabrennur voru hluti af áróðursvél yfirvalda í Þýskalandi nasismans.
Hér má sjá myndbandið af trans-aktívista brenna eintak af Harry Potter bók og viðbrögð J.K. Rowling sem segir: Ég elska að þið hafið bætt því við að „allur réttur sé áskilinn“, bara ef svo vildi til að fólk myndi leggja þetta fram til Óskarsverðlauna án ykkar samþykkis.