Hlé þurfti að gera á morgunútvarpsþætti BBC á föstudaginn þegar þáttastjórnandinn David Fitzgerald fékk hjartaáfall í beinni útsendingu. Samstarfsmaður hans Michael Checker neyddist til að taka við.
Fitzgerald yfirgaf stúdíóið strax og fór á sjúkrahús. Hann deildi mynd af sér af spítalanum á samfélagsmiðlunum og virtist glaður í bragði.
David Fitzgerald hefur verið útvarpsmaður síðan á níunda áratugnum og hefur einnig komið fram í sjónvarpi. Á sjónvarpsferli sínum hefur hann fjallað um mikilvæga atburði eins og dauða Díönu prinsessu, stríðið í Bosníu, konungleg brúðkaup o.fl.