Umfjöllun utanríkismálanefndar Alþingis um bókun 35 hefur verið slegið á frest í utanríkismálanefnd og virðist sem málið sé í uppnámi.
Í dag kl. 13:00 var á dagskrá fundur utanríkismálanefndar þar sem gestakomur yrðu vegna frumvarps utanríkisráðherra til laga um breytingu á lögum um Evrópska efnahagssvæðið. Málið varðar bókun 35 við EES samninginn og snýr að forgangi EES-réttar á landsrétt.
Dagskrá fundarins var aftur á móti fyrivaralaust breytt í gær og bókun 35 því tekin af dagskrá og nefndarmönnum engar skýringar gefnar á breytingunni samkvæmt frétt Morgunblaðsins í dag. Óljóst er því hvort málið fái afgreiðslu á næstunni.
Bókunin snýst um það að styrkja stöðu Evrópuréttar gagnvart innlendum rétti. Málið hefur undanfarið verið töluvert í umræðunni og menn bent á að bókun 35 muni festa í sessi fullveldisafsal landsins.