Ísrael þarf að láta hart mæta hörðu

frettinErlent2 Comments

Finnur Thorlacius Eiríksson skrifar:

Morguninn 7. október ruddist fjöldi liðsmanna Hamassamtakanna inn í Ísrael. Samkvæmt nýjustu fréttum myrtu þeir yfir 700 Ísraela og særðu yfir 2000. Þeir tóku auk þess yfir 130 gísla. Innrásin kom öllum í Ísrael að óvörum og einn helgasti hátíðisdagur Gyðinga breyttist skyndilega í martröð. Hryðjuverkamönnunum tókst að rjúfa varnarvegg Ísraels að Gazasvæðinu áður en þeir dreifðu sér um nærliggjandi byggðir.

Á meðan þúsundum flugskeyta rigndi yfir Ísrael, myrtu Hamasliðar almenna borgara, jafnt börn sem fullorðna, á heimilum sínum. Fjöldi fregna af nauðgunum, afhöfðunum og viðlíka hryllingi hefur borist undanfarna sólarhringa.

Meðal gíslanna sem Hamasliðarnir tóku var þrítug Instagramstjarna, Shani Louk. Hryðjuverkamennirnir afklæddu hana og hentu henni upp á pallbíl. Að svo búnu keyrðu þeir hana til Gazasvæðisins og tóku myndskeið af sér fagnandi þar sem hún sést liggja hreyfingarlaus. Á myndskeiðinu sést hryðjuverkamaður toga í hár hennar á meðan annar leggur lappir sínar yfir hana. Fjölskylda Shani sá þessar myndir og bar kennsl á hana þegar hryðjuverkamennirnir höfðu deilt myndskeiðinu á samfélagsmiðlum með stolti.

Að kalla hlutina sínu rétta nafni

Á sjálfstjórnarsvæðum Palestínumanna starfa yfir tuttugu hryðjuverkasamtök. Þetta er lykilástæðan fyrir langlífi deilunnar fyrir botni Miðjarðarhafs. En fjölmiðlar sjá aldrei ástæðu til að útskýra þessa staðreynd fyrir fólki. Auk þess virðist stefna fjölmiðla vera að forðast orðið „hryðjuverkasamtök“ þegar palestínsk samtök eiga í hlut. En hvað eru Hamassamtökin annað en hryðjuverkasamtök?

Mögulega eru almennir fjölmiðlar haldnir þeirri ranghugmynd að Hamassamtökin séu málsvarar lítilmagnans. En Hamasliðar hafa kúgað og misþyrmt eigin þegnum, Palestínumönnum, síðan þeir komust til valda árið 2006. Stöðug ógnarstjórn þeirra er raunverulega ástæðan fyrir einangrun svæðisins.

Hamassamtökin eru skólabókardæmi um hryðjuverkasamtök. Talsmaður samtakanna hefur viðurkennt að innrásin 7. október hafi verið fjármögnuð af Íran, en Íran er þekkt fyrir að fjármagna og þjálfa hryðjuverkasamtök víða um Mið-Austurlönd. Auk þess er skýr hliðstæða milli innrásar Hamassamtakanna og árása íslamska ríkisins (ISIS) á jasída í Sýrlandi. Bæði samtökin eiga það sameiginlegt að hafa ofsótt fólk sem er annars þjóðernis og trúar.

Almennir fjölmiðlar hafa gert vandræðalegar tilraunir til að fjalla um innrásina frá „báðum hliðum“, líkt og innrás hryðjuverkasamtaka sé á nokkurn hátt sambærileg hernaðaraðgerðum yfirvalda Ísraels. En það ríkir sem betur fer alþjóðleg samstaða um að yfirvöld sjálfstæðs ríkis, sérstaklega þegar þau eru lýðræðislega kjörin, líkt og í Ísrael, hafi meiri valdheimildir en uppreisnarhópar og hryðjuverkasamtök.

Fjölskyldumeðlimir ungmenna sem voru tekin í gíslingu af Hamas. Myndin er tekin á fjölmiðlaráðstefnu Kfar Maccabiah, Ramat Gan, October 8, 2023. Mynd: Miriam Alster/Flash90

Að láta hart mæta hörðu

Það er vissulega jákvætt að leiðtogar fjölda vestrænna ríkja hafi fordæmt innrásina og lýst yfir stuðningi við Ísrael undanfarna sólarhringa. En það þarf meira til. Ísrael hefur verið sært djúpu sári sem mun taka langan tíma að gróa og því er ólíklegt að átökunum linni í bráð.

Það ætti ekki að vera flókið að taka hlið Ísraels í þessu máli. Ísrael á í baráttu við samtök sem stæra sig af því að gera engan greinarmun á hermönnum og almennum borgurum. Stofnendur samtakanna hafa lýst því yfir að á Dómsdegi muni þeir myrða alla Gyðinga.

Þetta er ekki orðræða frelsissamtaka. Þetta er orðræða herskárra íslamista. Það ber að taka fram að íslam og pólitískur íslamismi er ekki sama fyrirbærið. Íslam kemur í ýmsum stærðum og gerðum og í þessari grein er alls ekki verið að fordæma alla múslima. En pólitískur íslamismi er óumdeilanlega öfgafull hugmyndafræði sem krefst algjörs samruna ríkis og trúar. Gegn slíkum óvini hefur Ísrael og í raun öll heimsbyggðin aðeins eitt ráð: Að láta hart mæta hörðu.

Nú gæti einhver bent á að hörð gagnsókn feli í sér stigmögnun og komi í veg fyrir að nokkur sátt náist. En staðreyndin er sú að Hamassamtökin hafa frá upphafi hafnað öllum sáttaumleitunum. Í stað þess tefla þau samlöndum sínum fram sem byssufóðri og nota þá sem mannlega skildi í hvert sinn sem Ísraelski varnarherinn nálgast. Ábyrgðin á öllu mannfalli meðal Palestínumanna mun því skrifast á Hamassamtökin en ekki Ísraelsher.

Nú vænti ég þess að réttmæt yfirvöld í Ísrael muni fljótt ná stjórn á ástandinu og snúi sér svo að því að uppræta Hamas og önnur hryðjuverkasamtök fyrir fullt og allt. Þá fyrst munu raunverulegar friðarviðræður geta átt sér stað milli Ísraelsmanna og Palestínumanna.

Viðtal við móður Shani má sjá hér neðar:

Greinin er fengin af vef MIFF.is.

2 Comments on “Ísrael þarf að láta hart mæta hörðu”

  1. Ég ætla svo sem ekki að réttlæta þennan Hamas rottu viðbjóð og mun aldrei gera það, enn að óska eftir meira blóðbaði er nú fyrir neðan allar hellur!

    Það má mín vegna uppræta og eyða Hamas, Isis og öll hin öfgasamtökin enn það ekki góð laust með því að útrýma fólkinu í Palistínu sem er í rauninni búin að sitja í útrýmingarbúðum í marga áratugi af handriti Bandaríkjanna.

    Það sem öskrar á að gera er að koma báðum deiluaðilum að samningaborðinu og semja um tvö þjóðríki Palistínu og Ísrael. Ég er á því að Kína Rússland og Indland eigi að leiða þessar viðræður, Bandaríkin bera í rauninni mesta ábyrgð á þessu blóðbaði og eiga ekki að koma nálægt þessum viðræðum.

    Að horfa upp á hina íslensku fjölmiðlanna lepja vitleysuna úr gömlu einræðisherra karluglunni í Washington er með ólíkindum!

  2. Hamas gerir allt til að grafa undan Palestínumönnum enda settir upp af ísrahell. Þetta er ekkert annað en frímúrara leikrit sett upp til að tryggja áframhaldandi árekstra. Sama leikritið og þegar gyðingar krota hakakrossa út um allt og grenja yfir ofsóknum.

Skildu eftir skilaboð