Stöðvum stríðið gegn börnum, er yfirskrift friðsællar mótmælagöngu sem fer fram um allan heim á morgun. Þrenn baráttusamtök standa fyrir göngunni hér á landi, það eru Samtökin 22, Foreldrar og verndarar barna og Stöðvum klámvæðingu barna.
Í tilkynningu frá samtökunum kemur fram að mótmælin gangi út á að vekja athygli á klámvæðingu barna í samfélaginu, grunnskólarnir hafa verið mikið gagnrýndir að undanförnu fyrir kennslugögn sem að snúa að þessu.
Mótmælin eru heimsviðburður sem fer fram á sama tíma í mörgum löngum, þar sem milljónir samanlagt munu mótmæla á sama degi. Samskonar samtök hafa jafnframt verið stofnuð víða um heim.
Lagt verður áherslur á að fjölmenna á móti:
- Róttækri kynlífsnámskrá barna
- Kynjahugmyndafræði
- Klámvæðingu barna
- Foreldraútilokun
- Hormónablokkerum barna
Mótmælaganga byrjar kl.13 á Hlemmi og verður gengið að Hörpu og endar gangan á Austurvelli.
Foreldrar barna í grunnskólum eru sérstaklega hvattir til að mæta og sýna samstöðu fyrir börnin.
Hægt er að melda sig á viðburðinn hér.