Alex Jones í viðtali hjá Tucker Carlson

frettinErlent, Gústaf Skúlason, Viðtal4 Comments

Gústaf Skúlason skrifar:

Af hverju ættum við að hata þessa tvo – sérstaklega Alex Jones – svona mikið? Samkvæmt mörgum blaðamönnum hjá stóru miðlunum? Að ekki sé minnst á RÚV? Tucker Carlson kemur sjálfur með svarið fyrir Jones:

„Vegna þess að hann hefur svo oft haft rétt fyrir sér, reyndar oftar en ekki. Hann gefur mörg ágæt dæmi um það. Greining Alex Jones á verkefnum glóbalismans gegn lýðræðinu hittir beint í mark. Fyrir ekki svo löngu síðan var það í mörg ár góð latína að segja: „Ekkert lýðræði án eignarréttar.” Enginn segir þetta lengur.”

Það sorglega er, að flestir lýðræðislega kjörnir fulltrúar á þingum landanna – bæði á Alþingi sem og annars staðar – sjá ekki vandann. Flestir þeirra eru nýtanlegir glóbalistum vegna fáfræði þeirra og afskiptaleysi. Jafnvel íhaldsmenn og „popúlistar” sem þykjast ekki bera kennsl á, hvað Evrópusambandið er í raun og veru, þ.e. vígstöð glóbalista. Á Íslandi étur ríkismiðillinn upp áróður glóbalismans í stað þess að rannsaka málin sjálfir.

Fólk sem trúir því að íslam, innflytjendur eða bóluefni séu eina stóra ógnunin við frið, velmegun og lýðræði þarf að hlusta á þennan þátt. Sama sneiðingaraðferðin er notuð við að taka frá okkur alþjóðlegar stofnanir eins og Alþjóðaheilbrigðismálastofnunina WHO og Sameinuðu þjóðirnar eins og Evrópusambandið gerir gagnvart aðildarríkjunum. Þetta eru sneiðar af mikilli áætlun glóbalismans, þar sem fjármálaauðjöfrar í vestri vinna meðal annars með Kommúnistaflokki Kína við að umbreyta vestrænu lýðræði í einræði fasismans og kommúnismans. Unnið er markvisst að því að taka frá okkur lýðræðið okkar, málfrelsið, velmegun og frið.

Heyrið viðtal Tucker við Alex Jones hér að neðan:

2:46 Alex Jones spár
15:07 Deplatforming
21:59 Skiptir okkur í keppni
25:37 Landamærin
28:09 Austin
32:12 Ný heimsskipan
42:09 Brian Stelter púkamyndband
50:57 Fólksfækkun
1:07:51 Matur
1:13:51 Viskí
1:16:22 Forsetakosningarnar

4 Comments on “Alex Jones í viðtali hjá Tucker Carlson”

  1. Hann laug um fjöldamorðin en segir satt um allt annað? Hvað er að Gústaf Skúlason? Þú ert nú meiri glópurinn

  2. Júlíus Einarsson, það má vel vera að hann hafi logið um fjöldamorðin, enn flest annað ert í rauninni rétt hjá honum sem er nú mikið betri árangur enn hjá nánast öllu fjölmiðlafólki á Íslandi sem eru með meistragráðu í því að búa til fréttir til að stýra umræðunni, og það eitt og sér met ég honum til tekna.

Skildu eftir skilaboð