Þjóðarmorð?

frettinErlent, Jón Magnússon1 Comment

Jón Magnússon skrifar:

Í tveimur meginfréttatímum RÚV í gær og í dag þann 11.mars hefur verið fjallað ítarlega um kæru Suður-Afríku á Ísrael vegna meints þjóðarmorðs á Palestínuaröbum. Þessi kæra er til þess að viðhalda röngu upplýsingaflæði til fólks og það er kærkomið fyrir RÚV.

Skv. tölum frá skæruliðasveitum Hamas þá hafa um 23 þúsund íbúar fallið á Gasa frá því í október. Vissulega mikið, en ekki meira en við mátti búast miðað við þær aðstæður sem eru fyrir hendi. Ekki eru gefnar upplýsingar um það hvað margir voru bardagamenn skæruliðahreyfingarinnar Hamas. 

Aleppo í Sýrlandi

Til samanburðar má benda á baradagana um Aleppo í Sýrlandi, en þar voru yfir 30 þúsund manns drepnir og 35% bygginga í lagðar í rúst. Í Raqqa höfuðborg ISIS gerðu Bandaríkjamenn gríðarlegar loftárásir og lögðu mikið af byggingum borgarinnar í rúst. 270.000 af 300.000 íbúum flýðu og 80% bygginga borgarinnar voru lagðar í rúst.

Í samanburði er því hryllingurinn á Gasa, það sem við mátti búast miðað við bardaga við þessar aðstæður. Í því sambandi verður að hafa í huga: Ísrael hefur verið tilbúið til að semja um að ljúka þessu stríði ef allir gíslar verði leystir úr haldi og þeir sem tóku þátt í og bera ábyrgð á hryðjuverkunum 7. október verði látnir svara til saka. Lýsir það vilja til þjóðarmorðs?

Hamas hreyfingin vel vígbúin

Í annan stað þá er ljóst, að Hamas hreyfingin er vel vígbúin og varin því að þrátt fyrir hernað í meir en 2. mánuði hefur varnarsveitum Ísrael ekki tekist að uppræta vígamennina, sem halda áfram að skjóta eldflaugum að Ísrael, en frá því greinir RÚV aldrei. 

Eftir að Ísraelsríki var stofnað ekki síst fyrir frækilega framgöngu sendiherra Íslands hjá Sameinuðu þjóðunum Thor Thors árið 1948 réðust Arabaríkin, Eyptaland,Sýrland, Jórdanía o.fl. á Ísrael en Ísrael hafði sigur. Markmið Arabaríkjanna var að útrýma Gyðingum í Ísrael og afmá tilveru Ísrael sem ríkis.

Arabaríkin hótuðu allsherjar árás á Ísrael

Árið 1967 hótuðu Arabaríkin allsherjar árás á Ísrael til það þurrka það út af landakortinu, en Ísraelsmenn höfðu frækinn sigur undir stjórn eins mesta hershöfðingja sögunnar Moshe Dyan, þar sem varnarsveitir Ísrael börðust við tífalt fleiri hermenn en þeir höfðu og sigruðu. 

Í Yom Kippur stríðinu 1973 réðust Egyptar og Sýrlendingar fyrirvaralaust á Ísrael, en varnarsveitum Ísrael tókst að snúa málum sér í hag ekki síst vegna snilldarlegrar herstjórnar Ariel Sharon síðar forsætisráðherra Ísrael,sem komst við það á spjöld sögunnar sem einn snjallasti hershöfðingi sögunnar ásamt landa sínum Moshe Dyan áður.

Þannig hefur Ísrael stöðugt þurft að verja sig og engin efast um það að vilji Arabaríkjanna í öllum þessum þrem styrjöldum sem ég hef vísað til hefur verið til að afmá Ísrael af landakortinu þó það hefði þýtt þjóðarmorð á Gyðingum. 

Þjóðarmorð á Aröbum hefur aldrei verið á dagskrá Ísrael

Þjóðarmorð á Aröbum hefur aldrei verið á dagskrá Ísrael enda búa fjölmargir Arabar í Ísrael og njóta þar allra borgaralegra réttinda. Það er hinsvegar markmið Hamas að útrýma öllum Gyðingum drepa þá og afmá þá algjörlega af jörðinni hvort heldur þeir búa í Ísrael eða annarsstaðar. 

Hverjir ættu þá að vera í réttarsölum ákærðir fyrir vilja til þjóðarmorðs. Það eru liðsmenn Hamas og taglhnýtingar þeirra, sem Katrínu Jakobsdóttur fannst eðlilegt að eiga orðastað við í ráðherrabústaðnum í gær og hafa hertekið Austurvöll með leyfi vinstri meirihlutans í Borgarstjórn. 

Væri ekki rétt að íslenska ríkisstjórnin beitti sér fyrir brottflutningi þessa fólks til að það geti sameinast fjölskyldum sínum í Egyptalandi eða Íran. Hér hefur þetta fólk, sem hatast út í allt vestrænt og vill búa við Sjaría lög ekkert að gera nema síður sé. 

One Comment on “Þjóðarmorð?”

  1. „Í tveimur meginfréttatímum RÚV í gær og í dag þann 11.mars hefur verið fjallað ítarlega um kæru Suður-Afríku á Ísrael vegna meints þjóðarmorðs á Palestínuaröbum. Þessi kæra er til þess að viðhalda röngu upplýsingaflæði til fólks og það er kærkomið fyrir RÚV.“

    RUV hefur reyndar ekkert með þessa kæru að gera?
    Kæran er lögð inn af Suður Afríku og það er nokkuð víst að sannleiksgildi kærunar er trúlega á rökum reist miðað við söguna.

    Jón Magnússon, skrif þín bera yfirleitt alltaf þess merki að þú ert betri enn flestir að upplýsa almennig um fáfræði og þraungsýni þína enn flestir, nema kannski flokksbróðir þinn og frímúrara-vinur Björn Bjarnason sem er á svipuðu leveli, þar að segja að skrifa alltaf út frá handbók flokksins, leggja aldrei sjáfstætt mat á neitt eða skoða allar hiðar málsins.

Skildu eftir skilaboð